Fasteignaleitin
Skráð 17. des. 2025
Deila eign
Deila

Jöfursbás 5A - íb. 306

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
118.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
117.900.000 kr.
Fermetraverð
993.260 kr./m2
Fasteignamat
93.100.000 kr.
Brunabótamat
82.360.000 kr.
Mynd af Víðir Arnar Kristjánsson
Víðir Arnar Kristjánsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2530340
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
6
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
72fm. þaksvalir
Lóð
1,73
Upphitun
Danfoss sameiginlegur
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
6 - Fullgerð án lóðarfrágangs
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kvöð / kvaðir
Ákveðnir starfsmenn fasteignasölunnar eru óbeinir hluthafar í félaginu sem selur.
Einstök eign - Sýni samdægurs. Bókið skoðun í síma 856 3566 eða á ingunn@domusnova.is

Domusnova og Ingunn Björg kynna afar fallega og vel skipulagða 3ja - 4ra herbergja endaíbúð á 3. hæð ( efstu hæð ) ásamt sérmerktu bílastæði í bílakjallara og 72  fm2 þaksvölum með glæsilegri fjalla og sjávarsýn að hluta.

Íbúðin er skemmtilega hönnuð, glæsilegt bjart og opið alrými með stórum gólfsíðum gluggum á tvo vegu, falleg eldhúsinnrétting með rúmgóðri eyju, útgengt á þaksvalir frá stofu og borðstofu sem snúa til suðurs, vesturs og norður, tvö baðherbergi, tvö svefnherbergi, annað þeirra með sér baðherbergi. Möguleiki er fyrir hendi að útbúa eitt svefnherbergi í viðbót. 
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er birt stærð 118,7  fm2, þar af er 6 fm2 geymsla. 
  • Aukin lofthæð
  • Gólfsíðir gluggar
  • 72 fm þaksvalir
  • Sérsmíðaðar innréttingar í öllum rýmum
  • Quartz steinn á borðplötum og undirlímdir vaskar
  • Vandað efnisval í tækjum og gólfefnum 
  • Gólfhiti
  • Afar snyrtileg og glæsilega hönnuð lóð með fallegri kvöldlýsingu
  • Hellulagðir / steyptir göngustígar sem að hluta til eru með snjóbræðslukerfi

Lýsing íbúðar:
Forstofa: Góð með stórum fataskápum sem ná til lofts
Eldhús: Falleg innrétting með eyju, góðu skápaplássi,Quartz steinn á borðplötum, undirfelldur vaskur, span helluborð í eyju. Innfelldur ísskápur og uppþvottavél. Útgengt á 72 fm þaksvalir. 
Stofa og borðstofa: Opin og björt með stórum gólfsíðum gluggum á þrjá vegu og fallegu útsýni að hluta til fjalla og sjávar. 
Hjónaherbergi:  Rúmgott og bjart með gólfsíðum glugga, vönduðum fataskápum sem ná til lofts, baðherbergi er innaf hjónaherbergi.
Svefnherbergi:  Rúmgott með fataskáp sem nær til lofts
Baðherbergi 1: Flísalagt gólf og veggir að hluta, walk inn sturta, vönduð innrétting með steinborðplötu og niðurfelldum vaski, handklæðaofn, upphengt salerni. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi 2: Inn af hjónaherbergi, flísalagt gólf og veggir að hluta, walk inn sturta, vönduð innrétting með steinborðplötu og niðurfelldum vaski, handklæðaofn, upphengt salerni.
Geymsla: 6 fm2 merkt íbúðinni í kjallara.
Bílastæði: Sér bílastæði í upphituðum bílakjallara merkt B 001.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl


Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum. Flísar á votrýmum og parket á aðalfötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

Fjöldi Íbúða í húsinu er 26, tvær íbúðir eru á þriðju hæð ogeinungis 10 íbúðir í þessu stigahúsi. 


Húsið: Húsið er  klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko.
Verktaki: GG verktakar.
Hönnuðir: Húsið er hannað af ARKÞING Arkitektum. 

Hverfið:
Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Í næsta nágrenni er eftirfarandi þjónusta: Verslun, skóla, leikskóla og íþróttamannvirki. Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.

Allir kaupendur og seljendur okkar fá Gullkort Domusnova.  Handhafar gullkortsins fá allt að 35% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar.

 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Myndir í söluyfirliti þessu eru tölvugerðar og endurspegla gæði og efnisval íbúða almennt en eiga ekki endilega við um viðkomandi eign.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2530340
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.210.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 5d íbúð 403 5
Bílastæði
Jöfursbás 5d íbúð 403 5
112 Reykjavík
115.2 m2
Fjölbýlishús
312
997 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5
Bílastæði
Skoða eignina Jöfursbás 5
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
115.2 m2
Fjölbýlishús
312
997 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5
Bílastæði
Skoða eignina Jöfursbás 5
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
118.7 m2
Fjölbýlishús
322
993 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5
Bílastæði
Skoða eignina Jöfursbás 5
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
125.8 m2
Fjölbýlishús
312
874 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin