Einar S. Valdimarsson, löggiltur fasteignasali, og EV fasteignasala slf. kynna fallegt og vel skipulagt raðhús við Sæból 7 í Grundarfirði.
Eignin er staðsett á eftirsóttum stað í Grundarfirði með glæsilegu útsýni og stutt í alla helstu þjónustu, skóla og fjölbreytta afþreyingu í þægilegu göngufæri.Eignin skiptist í:Forstofu, hol, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Forstofa er rúmgóð og flísalögð með góðum fataskápum og skúffueiningum. Þar er einnig rafmagnstafla og er með gólfhita.
Hol, gangur og stofa eru parketlögð. Stofan er björt og rúmgóð með útgengi út á stóran, skjólgóðan sólpall.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2016 og hefur verið lagfært á árunum 2025–2026. Það er flísalagt, rúmgóðum flísalögðum sturtuklefa með glervegg, upphengdu salerni og fallegri innréttingu með niðurfelldum vaski. Fyrir framan baðherbergið eru góðir innbyggðir skápar.
Hjónaherbergi er parketlagt með stórum fataskápum. Tvö barnaherbergi eru með plastparketi, annað þeirra með fataskápum en hitt án skápa.
Eldhús er með dúk á gólfi, borðkrók og viðarlitaðri innréttingu. Árið 2021 var það endurnýjað að hluta þegar skipt var um borðplötu, vask, blöndunartæki, bakarofn, keramikhelluborð og gufugleypi.
Þvottahús er með vinnuborði, vaski, útgengi út á framlóð og lúgu upp á háaloft.
Bílskúr er með steingólfi og þar hefur hitakútur verið endurnýjaður.
Viðhald og endurbætur skv. eigendaÁrið 2016 var skipt um þak á íbúð og bílskúr.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2016.
Ofnar voru endurnýjaðir árið 2020.
Eldhús var endurnýjað að hluta árið 2021, m.a. með nýrri borðplötu, vaski, blöndunartækjum, bakarofni, keramikhelluborði og gufugleypi.
Nýr sólpallur var byggður árið 2023.
Þak var yfirfarið og lagfært árið 2024.
Baðherbergi var lagfært á árunum 2025–2026.
Hitakútur í bílskúr hefur nýlega verið endurnýjaður.
Um er að ræða vel viðhaldið og fjölskylduvænt raðhús á frábærum stað í Grundarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Eign sem vert er að skoða.Nánari upplýsingar veitir:
Einar S. Valdimarsson
Löggiltur fasteignasali
Sími: 840 0314
Netfang: einar@provobis.isUm skoðunar- og aðgæsluskylduÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda. Kaupendum er bent á að kynna sér ástand eignarinnar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð og leita eftir atvikum til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits
Söluyfirlit er unnið af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í söluyfirliti eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og eftir atvikum frá húsfélagi. Seljandi veitir upplýsingar um eignina í samræmi við lög um fasteignakaup nr. 40/2002 og ábyrgist réttmæti þeirra. Fasteignasali sannreynir upplýsingar eftir fremsta megni með sjónskoðun en getur ekki staðfest ástand þeirra hluta eignarinnar sem ekki eru sýnilegir eða aðgengilegir, svo sem lagna, drenkerfis, skólps eða þaks.
Gjöld sem kaupandi greiðir við kaupinStimpilgjald af kaupsamningi samkvæmt gildandi reglum.
Þinglýsingargjald vegna kaupsamnings, veðskuldabréfa, veðleyfa o.fl. samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Lántökugjald samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
Umsýsluþóknun fasteignasölu kr. 64.000 m. vsk.