Fasteignaleitin
Skráð 5. maí 2026

Álftröð 1

Atvinnuhúsn.Suðurland/Selfoss-804
400 m2
10 Herb.
9 Svefnh.
10 Baðherb.
Verð
199.000.000 kr.
Fermetraverð
497.500 kr./m2
Fasteignamat
73.350.000 kr.
Brunabótamat
193.350.000 kr.
Byggt 2015
Garður
Pallur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2532388
Landnúmer
237385
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
nýtt 2015
Raflagnir
nýtt 2015
Frárennslislagnir
nýtt 2015
Gluggar / Gler
gott
Þak
nýtt 2015
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
hellulögð verönd
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Um er að ræða eignina Álftröð 1, 804 Selfoss, nánartiltekið eignarhluta 01-01, ásamt öllu er téðum eignarhluta fylgir og fylgja ber að engu undanskildu, þ.m.t. allt innbú, búnaði og líni sem tengist rekstri gistiheimilis, svo nýr eigandi getur hafið strax rekstur. Fastanúmer eignar: 253-2388, birt stærð eignarinnar er 400 m2. Eignin stendur á eignarlóð, birt stærð lóðar 5.800 m2. skipulögð sem Viðskipta og þjónustulóð. 

Að utan er eignin klædd með lóðréttri hvítri timburklæðningu, állistum á gluggum og bárujárn á þaki. Fyrir framan hús er hellulagt og hellulögn sem liggur að heitum potti sem er staðsettur á bakvið hús. Gott bílastæði er fyrir framan húsið.
Þegar inn er komið er rúmgóð forstofa með fatahengi. Inn af því er komið inn í nokkuð stórt rými sem hýsir annars vegar móttöku, setustofu og bar í hálfu rýminu og hins vegar í hinum helmingnum er eldhús og matsalur með aðstöðu fyrir morgunverðarhlaðborð. Rýminu er skipt með léttum vegg að hluta. Timburlitaður panill í lofti í öllu húsinu með innfelldri lýsingu. Gólfið í húsinu er mjög snyrtilegt, flotað með gráum lit, og hiti í gólfi.
Í eigninni eru átta, tveggja manna herbergi og eitt, fjögurra manna herbergi í sér svefnherbergisálmu. Það er því svefnpláss fyrir 20 manns. Í herbergjum er baðherbergi með sturtu, salerni og handklæðaofn. Hvítar flísar á vegg í sturtu og hjá salerni og vask. Herbergi eru mjög snyrtileg og vel frá gengin. Yfir u.þ.b. hálfu húsinu er geymsluloft eða um 90m2. 

Allt innbú, búnaður og lín fylgir eigninni að utan persónulegum munum seljenda svo sem myndir á veggjum og píanó. Seljandi skoðar að taka söluvænlegt húsnæði upp í kaupverð.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tónahvarf 10
20241011_140841.jpg
Skoða eignina Tónahvarf 10
Tónahvarf 10
203 Kópavogur
393 m2
Atvinnuhúsn.
2
Fasteignamat 121.450.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Faxabraut 6
Skoða eignina Faxabraut 6
Faxabraut 6
815 Þorlákshöfn
360 m2
Hesthús
1
Fasteignamat 27.720.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Vetrarbraut 21
Á einni hæð
Skoða eignina Vetrarbraut 21
Vetrarbraut 21
815 Þorlákshöfn
95,9 m2
Raðhús
313
750 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Víðibrekka 11
Heitur pottur
Skoða eignina Víðibrekka 11
Víðibrekka 11
805 Selfoss
92,9 m2
Sumarhús
513
591 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin