Lögeign kynnir eignina Baughóll 10, 640 Húsavík
Baughóll 10 er fimm herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð með bílskúr. Um er að ræða endaíbúð, innst í rólegri botnlangagötu.
Byggt úr steypu árið 1973 og er 139,3 m2 að stærð og þar af 19,8 m2 bílskúr. Steypt bílastæði er framan við hús, ásamt hellulagðri verönd með skjólveggjum. Bakvið hús er timburverönd, en ekkert hús er þar fyrir framan, heldur þéttur skógur sem veitir gott skjól.
Íbúðin skiptist í: Forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, 4 svefnherbergi og bílskúr/þvottahús.
Forstofa: er með flísum á gólfi og er inngangshurð úr forstofu inn í miðrými íbúðar.
Stofan: er rúmgóð með tveimur stórum gluggum sem veitir góða birtu í rými. Flísar eru á gólfi og hurð út á timburverönd.
Eldhús: er með viðarlitaðri eldhúsinnréttngu með efri og neðri skápum og flísum á milli skápa og á gólfi. Eldhúskrókur er við eldhús.
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf, með sturtu með glerskilrúmi. Stór hvít skápainnrétting er með vask er á baðherberginu.
Fjögur svefnherbergi: Öll fjögur svefnherbergin eru staðsett á herbergisgangi og eru þau öll með parketi á gólfi.
Bílskúr/þvottahús: er með gönguhurð, og búið er að setja skápaeininginar í skúrinn. Inn af skúrnum er þvottahús með skápum og borðplötu ásamt upphækkun fyrir þvottavél.
Að utan: Steypt bílastæði fyrir tvo bíla er fyrir framan íbúðina ásamt hellulagði verönd með skjólveggjum, en aftan við hús er gróinn garður og timburverönd með skjólveggjum.
Skipt var um þakkant á eigninni 2007 og gler og opnanleg fög árið 2009.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu hermann@logeign.is eða Hinrik Lund lgf. í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á