Glæsileg 112,7 fm 3 herbergja endaíbúð. Svíta með sérbaðherbergi og útgengi út á 42,1 fm þaksvalir í suður og vestur með heitum potti. Sérþvottahús. Íbúðin er tilbúin til afhendingar og afhendist fullbúin með vönduðu viðarparketi. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Kári Sighvatsson, lögfr. og löggiltur fasteignasali í síma 8998815, kari@eignamidlun.is - bókið skoðun!*** Sækja söluyfirlit ***Orkureiturinn.isDalsmúli 3, íbúð 06-09 er 112,7 fm 3 herbergja íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á einstaklega góðum stað rétt við Laugardalinn. Opinber skráning eignarinnar: Birt flatarmál er
112,7 fm, með geymslu í sameign.
Innréttingaþema er Rut 3 (700 línan). Mögulegt er að fá keyptan bílskúr í bílakjallara með íbúðinni.Nánar um Orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðirÁ Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús.
Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Kerfið endurvinnur varma upp að 85%, nýtir varma úr útsogslofti og hitar ferskt loft sem dælt er inn. Allt loft sem fer í gegnum kerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella. Hægt er að stýra kerfinu á bæði einfaldan máta á vegg eða með appi í snjallsíma.
Hönnun: Rut Kára innanhússarkitekt stýrir fágaðri hönnun innréttinga íbúða ásamt því að leggja línuna fyrir öll sameiginleg rými svo úr verður heildarmynd byggingar sem er engu lík. Rut Kára hefur lag á því að skapa heim sem við viljum búa í.
Framtíðarheimili á OrkureitnumOrkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu.
Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“. Jafnframt er stefnt að því að allar íbúðir á reitnum verði Svansvottaðar.Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.
Nánari upplýsingar gefa löggiltir fasteignasalar Eignamiðlunar. Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Magnús Þórir Matthíasson löggiltur fasteignasali, sími 895-1427, magnus@eignamidlun.is
Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 839-1600, gunnarbergmann@eignamidlun.is
Ólafur H Guðgeirsson löggiltur fasteignasali, sími 663-2508, olafur@eignamidlun.is
Oddný María Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali, sími 777-3711, oddny@eignamidlun.is
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson löggiltur fasteignasali, sími 864-5464, gudlaugur@eignamidlun.is