Fasteignaleitin
Skráð 3. maí 2024

Grensásvegur 1F 701

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
97.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
139.900.000 kr.
Fermetraverð
1.431.934 kr./m2
Fasteignamat
79.650.000 kr.
Brunabótamat
61.750.000 kr.
Mynd af Gunnar Patrik Sigurðsson
Gunnar Patrik Sigurðsson
Fasteignasali
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2522220
Landnúmer
105655
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
07
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 7. og efstu-hæð, á Grensásvegi 1F, íbúð nr. 0701, sem skilast fullbúin með gólfefnum, sjá nánar skilalýsingu. Íbúðin er skráð skv. Þjóðskrá 97,7fm í góðu lyftuhúsi. Tvennar góða inndregnar svalir fylgja íbúðinni, aðrar um 10,8fm og hinar um 7,1fm. auk sérgeymslu í sameign, skráð 6,4fm, sjá nánar á heimasíðu: Söluvefur G1.  Nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik fasteignasali í GSM 822-9415 eða gunnar@fstorg.is 

Allar íbúðir á 7. og efstu hæð verða afhentar samkvæmt skilalýsingu, sjá hér úrdrátt: Íbúðum er skilað með eldhús-, bað- og þvottahúsinnréttingum (sér þvottahús er ekki í öllum íbúðum), ásamt fataskápum í forstofu og svefnherbergjum/fataherbergjum. Flestar innréttingar eru í dökkum eikarlit í bland við hvítar háglans hurðar.

Nánari lýsing: Glæsilegar nýjar íbúðir á þessum eftirsóttastað í útjaðri Skeifunnar að Laugardalnum, sem er eitt fallegasta útivistarsvæði borgarinnar. Íbúðin er í göngufæri við alla almenna þjónustu s.s í Glæsibæ og Skeifunni. Alls eru áætlaðar allt að 204 íbúðir í þessu verkefni, sjá nánar á heimasíðu: Söluvefur G1.  Allar íbúðirnar eru innréttaðar á sama hátt. Íbúðum er skilað með eldhús-, bað- og þvottahúsinnréttingum (þvottahús er ekki í öllum íbúðum), ásamt fataskápum í forstofu og svefnherbergjum/fataherbergjum. Allar innréttingar eru í dökkum eikarlit í bland við hvítan akrýl sem er eitt það slitsterkasta efni sem völ er á í dag. Gólfhiti er í öllum rýmum íbúða. Ofnar eru í sameign og á geymslusvæðum fyrir utan sjálfan bílakjallarann. Innan íbúða verður stærsti hluti innveggja, þ.e. þeir sem ekki eru staðsteyptir, úr LEMGA léttsteypusteinum. Einungis lítill hluti veggja í húsinu verða gifsveggir. Sorpflokkun/sorplosun í húsinu er öll í sameiginlegri sorpgeymslu í kjallara innanhúss. Sorp verður losað um lúgur eftir tegund sorps. Engin sorpgeymsla eða flokkun er utandyra. Almennt gildir að íbúðum verður skilað máluðum í ljósum litum og án gólfefna fyrir utan flísalögn á bað- og þvottaherbergjum. Veggir á baðherbergjum verða flísalagðir fyrir utan vegginn þar sem gengið er inn í baðherbergi. Handklæðaofn er í öllum baðherbergjum. 
Gert er ráð fyrir allt að um 4.000 m2 af atvinnuhúsnæði, þ.e. skrifstofu-, veitinga og verslunarhúsnæði, sem að mestu leyti er í sérinngangi í sjö hæða norðurenda Grensásvegi 1A-hússins, en einnig er atvinnuhúsnæði á jarðhæð meðfram Grensásvegi og á allri jarðhæð 1C-húss sem staðsett er á suðurenda lóðar. Heildarfjöldi bílastæða er rúmlega 180 stæði í kjallara á þremur hæðum. Einnig er m.a. að finna sameiginlega hjólageymslu í kjallara fyrir um 400 hjól. Fjöleignarhúsin skiptast í fjögur sjálfstæð hús ofanjarðar með sjö stigagöngum, sameiginlegum kjallara, bílastæðum og geymslum. Geymslur fylgja öllum íbúðum og eru þær staðsettar á fyrstu og annarri hæð kjallara og eru flestar þeirra í svokölluðum geymslugangi sem er aðgengilegur frá bílakjallara en nokkrar þeirra snúa beint út í bílakjallara. Íbúar hafa aðgengi að einu eða fleiri bílastæðum í bílakjallara gegn gjaldi. Hægt verður að velja um fleiri en eina áskriftarleið eftir viðveru. Einnig verður möguleiki á skammtímaleigu á stæðum yfir hluta úr degi í gegnum stæðakerfið sem byggir á myndavélakerfi við inn- og útkeyrslu í bílakjallara frá Skeifunni. Húsin verða fjögurra til sjö hæða, sjö hæðir á lóðinni til norðurs á móti Glæsibæ, fimm hæðir á miðri lóð og fjórar hæðir í suðurenda lóðar að Skeifunni. Á milli húsanna er skipulagður sameiginlegur garður fyrir íbúa og snúa verandir stigaganga 1A, 1B, 1D, 1E og 1F að þeim garði. Inngangar inn í sum húsin liggja einnig í gegnum garðinn.  Göngustígar inni í garðinum verða steyptir/hellulagðir/malbikaðir að mestu leyti með snjóbræðslukerfi. Aðgengi inn í garðinn verður eingöngu fyrir gangandi og hjólandi fólk. Garðurinn verður opinn. Sólin skín frá suðri beint inn í inngarðinn á milli húsanna enda markmiðið að skapa skemmtilegan sælureit og leikaðstöðu. Gróður verður í garðinum og upp við íbúðir á jarðhæð sem snúa inn í garðinn. Sérafnotaréttur íbúða á jarðhæð er málsettur og afmarkaður með eins meters háum timburskjólveggjum. Frágangur á útjaðri lóðar verður vandaður og mun tengjast gangstéttum í kringum lóðina til að gera flæði fólks ofanjarðar og upp úr kjallara sem hentugast. Í allri hönnun er tekið tillit til fólks í hjólastólum eins og kröfur segja til um og í því samhengi verða t.d. átta lyftur í þeim fjórum húsum sem verða byggð á lóðarhluta I. Einnig verða fimm hjólastólastæði í bílakjallara með aðgengi upp á hæðir ofanjarðar. Nánari upplýsingar má finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins,  Söluvefur G1.  
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (11)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þorraholt 1B Þakíbúð
Bílastæði
Þorraholt 1B Þakíbúð
210 Garðabær
165.2 m2
Fjölbýlishús
423
Fasteignamat 129.100.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Njálsgata 108
Opið hús:18. júní kl 17:00-12:30
Skoða eignina Njálsgata 108
Njálsgata 108
105 Reykjavík
56 m2
Fjölbýlishús
312
891 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, Íb. 501
Bílastæði
Opið hús:14. júní kl 13:30-14:00
Hringhamar 37, Íb. 501
221 Hafnarfjörður
83.8 m2
Fjölbýlishús
312
895 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 5
Opið hús:18. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Asparskógar 5
Asparskógar 5
300 Akranes
83.8 m2
Fjölbýlishús
312
810 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin