ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu 3. herbergja 89,2 fm tveggja hæða endaraðhús með bílskýli að Mávabraut 5E, í vinsælu hverfi miðsvæðis í Keflavík. Eign sem vert er að skoða.Stutt er í alla helstu þjónustu þ.á.m. grunnskólann Holtaskóla. Nánari upplýsingar veita:Helgi Bjartur Þorvarðarson Löggiltur fasteignasali, í síma 7702023, Netfang
helgi@allt.isPáll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali Síma
560-5501 Netfang
pall@allt.isFramkvæmdir sem seljandi hefur upplýst um:- 2015: Frárennslislagnir endurnýjaðar
- 2015: Vatnslagnir endurnýjaðar
- 2015: Þak endurnýjað
- 2015: Svalahurð og tveir gluggar endurnýjaðir
- 2021: Gafl hússins klæddur
- 2023: Hús sprunguviðgert og málað að utan
- 2023: Strandvíðir og greni gróðursett
- 2024: Þak málað
- 2024: Sólpallur smíðaður og garðskúr.
Nánari lýsing eignar:
Neðri hæð:Forstofa: Er flísalögð með fataskápum
Hjónaherbergi: Er með parketi á gólfi og góðum fataskápum, útgengt er frá svefnherbergi út á sólpall.
Barnaherbergi: Er með parketi á gólfi
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa og góðri innréttingu.
Þvottahús/Geymsla: Er rúmgott með máluðu gólfi og geymsluhillum.
Efri hæð:Eldhús: Er með borðkrók og ágætri innréttingu, útgengt er á svalir sem snúa í suðvestur.
Stofa: Er rúmgóð og björt
Svalir: Eru steyptar ofan á bílskýli og skjólveggur í kring.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.