Fasteignaleitin
Skráð 27. júní 2026

Jakasel 8

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
120.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
93.500.000 kr.
Fermetraverð
775.290 kr./m2
Fasteignamat
84.000.000 kr.
Brunabótamat
54.900.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1984
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2057364
Landnúmer
113314
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Tvöfallt gler. Þarf að skipta um gler í einum herbergisglugga.
Þak
Upprunalegt. Þak málað og yfirfarið 2019
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Rúmgóður aflokaður viðarpallur
Lóð
50
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Móða í neðra gleri í forstofu og í opnanlegu fagi í einu herbergjana á efri hæð.

Af og til verður vart við smá leka í tengslum við sturtubotn.
Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna fallegt, bjart og vel skipulagt 105,6 fm, 4ja herbergja parhús á 2 hæðum að Jakaseli 8, 109 Reykjavík. Vel staðsett eign í rólegu og barnvænu Seljahverfi. Fjölbreytt verslun og þjónusta í nágrenninu og stutt út á stofnbrautir.  
Um er að ræða gott fjölskylduhús með 3 rúmgóðum svefnherbergjum á efri hæð en á neðri hæð er bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda hlýlegt rými með beinu útgengi út á stóran, aflokaðan viðarpall sem snýr til suðvesturs. Fyrir framan húsið eru tvö sérbílastæði og sérstæður um 15 fm geymsluskúr með rafmagni. Skúrinn er séreign en er ekki innifalinn í skráðri fermetratölu eignarinnar. 


Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is 
 
Eignin Jakasel 8 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 205-7364, birt stærð 105.6 fm. Skúr á lóð (ca. 15 fm) er séreign og er því ekki skráður inn í fermetratölu eignar skv. fasteignaskráningu. 
 
Nánari lýsing: 
Neðri hæð: 
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi, snögum og skóhillum. Gestasalerni inn af forstofu. 
Gestasalerni / þvottahús: Inn af forstofu. Klósett, upphengdur vaskur ásamt spegli fyrir ofan vask. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. 
Hol: Tengir saman forstofu og stofurými. 
Stofa: Rúmgóð og björt stofa. Góð tenging við eldhús. Útgengt út á rúmgóðan, aflokaðan og sólríkan sólpall til suðvesturs. Stigi upp á efri hæð úr stofu. 
Eldhús: Opið og í góðri tengingu við stofu. Ljós innrétting með efri og neðri skápum. Eldavél með helluborði, vifta fyrir ofan eldavél. Innbyggð uppþvottavél og aðstaða fyrir ísskáp. Gluggi með opnanlegu fagi í eldhúsi. 
 
Efri hæð: 
Hol: Komið upp í herbergjagang úr stiga. Tengir saman 3 svefnherbergi ásamt baðherbergi. 
Svefnherbergi I: Rúmgott með innbyggðum fataskápum. 
Svefnherbergi II: Gott barnaherbergi með innbyggðum fataskápum. 
Svefnherbergi III: Gott barnaherbergi með innbyggðum fataskápum. 
Baðherbergi: Uppgert árið 2019 með rúmgóðum sturtuklefa, upphengdu salerni ásamt baðinnréttingu með neðri skúffum og borðplötu með innfeldum vaski. Spegill fyrir ofan vask. Dúkur á gólfi. 
 
Sólpallur: Rúmgóður, aflokaður og sólríkur viðar sólpallur sem snýr til suðvesturs. Útgengt út á pall úr stofu. 
Geymsluskúr: Sérstæður skúr á lóð fyrir framan hús með rafmagni. Ca. 15fm. Ekki inni í skráðri birtri fermetratölu eignar. 
 
Bílaplan: Sér bílastæði á lóð fyrir framan hús fyrir 2 bíla. 
 
Staðsetning: Afar vinsælt, gróið og fjölskylduvænt hverfi með leik-, grunn- og framhaldsskóla í nágrenninu ásamt íþróttasvæði ÍR. Fjölbreytt verslun og þjónusta í nágrenninu. Þá er staðsetningin afar er góð þegar horft er til samgönguleiða. Stutt í falleg útivistarsvæði, göngu- og hjólaleiðir. Skíðabrekka í næstu götu, en þar er fyrirhugað að gera Vetrargarð. 
  
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is. 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/11/201526.050.000 kr.37.700.000 kr.105.6 m2357.007 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2017
15 m2
Fasteignanúmer
2057364
Byggingarefni
Timbur

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sæból 7
Skoða eignina Sæból 7
Sæból 7
350 Grundarfjörður
133.2 m2
Raðhús
413
413 þ.kr./m2
55.000.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 1
Bílastæði
Opið hús:27. júlí kl 17:00-18:00
Skoða eignina Asparlaut 1
Asparlaut 1
230 Reykjanesbær
100 m2
Fjölbýlishús
312
699 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 38
Skoða eignina Stefnisvogur 38
Stefnisvogur 38
104 Reykjavík
114.6 m2
Fjölbýlishús
312
1003 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 44 - Íbúð 409
Stefnisvogur 44 - Íbúð 409
104 Reykjavík
104.1 m2
Fjölbýlishús
413
873 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin