Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
218 m2
7 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
97.300.000 kr.
Fermetraverð
446.330 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Byggt 1985
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
101021026
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Raflagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Kæling / Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEGT MIKIÐ ENDURNÝJAÐ EINBÝLISHÚS Á BESTA STAÐ Í VILLAMARTIN* *6 SVEFN. OG 2 BAÐH.* *1.200 FM LÓÐ* BÍLSKÚR OG STÆÐI FYRIR 2-3 BÍLA Á LÓÐ* *STÓR SUNDLAUG OG ÚTIELDHÚS*

Glæsilegt og vel hannað 218 fm einbýlishús á tveimur hæðum. Stór garður með einkasundlaug. Húsið er á góðum stað í Villamartin hverfinu, einu af vinsælustu hverfum Orihuela Costa. Örstutt göngufæri í verslanir, veitingastaði og matvöruverslanir. 1km á golfvöll og 4,5 km á strönd.

GOTT SKIPULAG, sex svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgóð stofa, eldhús og borðstofa í björtu opnu rými með góðri tengingu við stóra verönd. Stór sér garður með einkasundlaug, sólbaðsaðstöðu og pláss fyrir 2-3 bíla. Verönd á efri hæð með frábæru útsýni.
Einstakt gróið umhverfi, með verslanir, veitingastaði og golf í göngufæri. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á ströndina.

Allar upplýsingar gefur Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. Sími 0034 615 112 869. berta@spanareignir.is 

Nánari lýsing:
Neðri hæð: Frá forstofu er gengið inn í bjart rými með útgengi út á svalir. Þar er nýlegt eldhús með góðu skápaplássi og eyju, og pláss fyrir stórt borðstofuborð. Þaðan er komið inn í stofu með gólfsíðum gluggum og hægt að ganga út í garð/svalir. Á hæðinni eru fjögur svefnherbergi, baðherbergi með baðkari og þvottahús. Á efri hæð er hjónasvíta, tvö svefnherbergi (annað þeirra notað sem fataherbergi), glæsilegt endurnýjað baðherbergi með frístandandi baðkari og sturtu, og útgengi út á stórar svalir með glæsilegu útsýni. 

Húsið stendur á 1.171 fm lóð. Stór sér garður með einkasundlaug og nægu plássi fyrir sólbaðaðstöðu, útigrillaðstöðu og fleira. Lóðin er lokuð og hægt að legga 2-3 bílum inni á lóðinni. Á lóðinni er stór viðbygging úr við, sem hægt er að nýta sem tómstundarrými eða einangra og nýta sem íbúðarrými. Tilvalið fyrir golfhermi, vinnuaðstöðu eða líkamsræktaraðstöðu.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni t.d.  La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Lo Romero.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og vinsælu verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Frábær eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Verð 695.000 evrur (97.300.000 ISK) m.v. gengi 1Evra=140 ISK

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.12%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, loftkæling, golf, svalir, útsýni, bílskúr, stór lóð, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin, El Galan,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
101021026
Fasteignanúmer
101021026

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Úugata 40
Bílskúr
Skoða eignina Úugata 40
Úugata 40
270 Mosfellsbær
239,2 m2
Raðhús
624
623 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Asparlundur 5
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Asparlundur 5
Asparlundur 5
270 Mosfellsbær
207,4 m2
Einbýlishús
544
723 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Bæjargata 17
Hleðslustöð
IMG_5768.JPG
Skoða eignina Bæjargata 17
Bæjargata 17
210 Garðabær
207,1 m2
Raðhús
624
965 þ.kr./m2
199.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 100
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Suðurgata 100
Suðurgata 100
102 Reykjavík
201,3 m2
Einbýlishús
837
894 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin