Fasteignaleitin
Opið hús:01. nóv. kl 15:00-15:30
Skráð 25. júlí 2025

Vesturvangur 46

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
197 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
164.900.000 kr.
Fermetraverð
837.056 kr./m2
Fasteignamat
140.300.000 kr.
Brunabótamat
97.950.000 kr.
Byggt 1978
Geymsla 33.6m2
Garður
Pallur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2080532
Landnúmer
122916
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað
Raflagnir
Endurnýjað að mestu
Frárennslislagnir
Endurnýjað innanhúss
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta, sjá lýsingu
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega glæsilegt og fallega hannað 197,0 fm. einbýlishús með bílskúr á eftirsóttum stað við Vesturvang 46, Hafnarfirði.  Húsið hefur verið töluvert endurnýjað. Framkvæmdir á þaki og ytra byrði haust 2026 og endurbætur að innan 2021 eftir hönnun Rutar Káradóttur.   Eignin telur m.a. fjögur rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og gestasalerni, eldhús sem er opið inn í rúmgóða og bjarta borðstofu og stofu. Garður er stór og gróinn með skjólgóðri verönd fyrir framan hús til suðurs.  Undir bílskúr er rými með sérinngangi og því möguleikar að útbúa t.d. auka íbúð.  

* Þak endurnýjað, m.a. þakjárn, pappi og þakrennur. Nýr þakkantur og skyggni.
* Hús og bílskúr sprunguviðgert og málað að utan ásamt gluggum.
* Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar og gólfefni með gólfhita.
* Tímalaus og stílhrein hönnun.
* Vel staðsett fjölskylduhús á rólegum og eftirsóttum stað í Norðurbæ Hafnarfjarðar.

* Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, falleg útivistarsvæði allt um kring. 

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is  ** Velkomið að bóka einkaskoðun **

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR


Nánari lýsing:  Eignin er sérlega vel skipulögð og falleg aðkoma er að húsinu.
Forstofa er með sérsmíðuðum fataskápum og stórum spegli. Flísar eru á gólfum.
Eldhús er bjart og vel hannað með góðu skipulagi.  Innréttingar eru sérsmíðaðar með góðu skápaplássi.  Tæki í eldhúsi eru vönduð frá Smith og Norland, m.a. tveir bakaraofnar, innbyggður ísskápur, vínkælir og uppþvottavél.
Vandaður kvartssteinn er á borðum með undirlímdum vaski. Nýlega var settur stór gólfsíður gluggi í eldhús sem gefur fallega birtu í rýmið.
Stofa og borðstofa eru í björtu opnu rými með sérsmíðuðum hillum. Möguleiki er að stækka húsið, þá fyrir framan stofu sunnanmegin. Hugsað var fyrir stækkun í fyrri framkvæmdum mtt. gólfhita og rafmagns. Teikningar af viðbyggingu má nálgast hjá fasteignasala.
Svefnherbergin eru fjögur, öll rúmgóð og björt með parketi á gólfum. Í tveimur svefnherbergjum eru sérsmíðaðir fataskápar með vinnuaðstöðu. Hjónaherbergi er einnig með sérsmíðuðum fataskápum.
Baðherbergi er með fallegri innréttingu og sérsmíðuðum vaski, stórum speglum og gott skápapláss, salerni er upphengt. Niðurtekin loft að hluta með innbyggðri lýsingu. Sturta og baðkar með innbyggðum blöndunartækjum.  Flísar eru á gólfum og vegg að hluta. Góðir opnanlegir gluggar. Gestasalerni er einnig með vönduðum tækjum og upphengdu salerni. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er með mjög góðu skápaplássi og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur, handklæðaofn og auka geymslurými er fyrir innan.  Flísar eru á gólfum. Nýleg útidyrahurð er úr þvottahúsi með útgengt út í garð norðanmegin með þvottasnúrum.
Garður er stór og gróinn með skjólgóðri verönd til suðurs.  Lóðin er skráð 1029,7 fm. að stærð.
Bílskúr er skráður 33,6 fm. að stærð með nýlegri bílskúrshurð og rafdrifnum hurðaopnara.  Vatn og rafmagn til staðar. 
Rými undir bílskúr er með sérinngangi bakatil og skráð 33,6 fm. að stærð.  Notað í dag sem vinnuaðstaða og geymslurými en ýmsir möguleikar eru fyrir hendi m.a. að útbúa auka íbúð.

Framkvæmdir og viðhald síðustu ára: 
Haust 2026 var skipt um þakjárn, þakpappa og þakrennur. Smíðaður nýr þakkantur og þakskyggni á húsið.  Húsið sprunguviðgert að utan, húsið málað ásamt gluggum að utan. Nýtt timbur á grindverk. Ný flasning sett á bílskúrsþak og bílskúr einnig sprunguviðgerður og málaður.  2025 var þak á bílskúr endurnýjað, settur nýr pappi og niðurfall lagað.  2021 var farið í töluverðar endurbætur og innra skipulagi hússins breytt. Öll gólfefni endurnýjuð, parket og flísar frá Ebson og sett gólfhitakerfi. Innréttingar og hurðar eru sérsmíðaðar frá Beyki, hurðahúnar frá Ebson. Á baðherbergjum eru vönduð blöndunartæki frá Vola/Tengi. Kvartsstein frá Granítsmiðjunni (Noble Ivory White) á eldhúsbekk, tækjaskáp og baðherbergi, sérsmíðaður vaskur.  Allar loftaplötur endurnýjaðar og settar innfelldar ljósabrautir með kösturum frá Lumex, sem sá jafnframt um ljósahönnun. Sett var ný rafmagnstafla auk þess sem stór hluti raflagna var endurnýjað og bætt við internetlögnum. Allir tenglar og rofar voru endurnýjaðir. Jafnframt tengt 3fasa rafmagn og leitt út í rými undir bílskúr.  Neysluvatnslagnir endurnýjaðar og settur forhitari.  Skólplagnir endurnýjaðar innanhúss.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/07/201443.850.000 kr.48.000.000 kr.197 m2243.654 kr.Já
09/01/201238.150.000 kr.40.000.000 kr.197 m2203.045 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1982
33.6 m2
Fasteignanúmer
2080532
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.150.000 kr.
Byggt 1982
33.6 m2
Fasteignanúmer
2080532
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.050.000 kr.
RE/MAX
http://www.remax.is

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Blikaás 50
Bílskúr
Skoða eignina Blikaás 50
Blikaás 50
221 Hafnarfjörður
206 m2
Parhús
514
689 þ.kr./m2
141.900.000 kr.
Skoða eignina Asparlundur 5
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Asparlundur 5
Asparlundur 5
270 Mosfellsbær
207,4 m2
Einbýlishús
544
723 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Bæjargata 17
Hleðslustöð
IMG_5768.JPG
Skoða eignina Bæjargata 17
Bæjargata 17
210 Garðabær
207,1 m2
Raðhús
624
965 þ.kr./m2
199.900.000 kr.
Skoða eignina Akralundur 17
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Akralundur 17
Akralundur 17
300 Akranes
183,6 m2
Raðhús
524
599 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin