Lind fasteignasala kynnir með stolti: Góð 3ja herb. íbúð á 3ju og efstu hæð við Heiðarhvamm 7, Reykjanesbæ.
Eign með miklu útsýni og góðum svölum til vesturs. Búið er að endurnýja hluta af gluggum. Eign sem bíður uppá mikla möguleika.
Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, íbúð 303, birt stærð 77.3 fm
Einnig fylgir henni geymsla á jarðhæð og er hún til viðbótar skráðri stærð.
Fasteignamati fyrir árið 2026: 43.900.000.
Nánari upplýsingar veita:
Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
Hafþór Örn, löggiltur fasteignasali, S: 699-4040, hafthor@fastlind.is
Íbúðin skiptist í eldhús, stofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, svalir og sér geymslu í sameign sem er ekki inn í skráðum fm.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús með sameiginlegum þurrkara og hjólageymsla einnig á jarðhæð.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri: Gengið er inn af stigagangi inn í anddyri sem er flísalagt með góðum fataskáp.
Eldhús: Er inn af anddyri, flísalagt og með góðri innréttingu, tækjum ásamt góðum eldhúskróki með útsýni.
Stofa: Rúmgóð með flísum á gólfi og útgengt er út á svalir.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og að hluta veggja, Baðkar með sturtu og góð innrétting. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara inná baðherbergi
Hjónaherbergi: Með dúk á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi: Með dúk á gólfi og fataskáp.
Geymsla: Sér geymsla er á jarðhæð eignar. ca. 4fm.
Hjóla og vagnageymsla sem og þvottahús eru á jarðhæð
Framkvæmdir seinust ára samkvæmt seljanda
Skipt var um glugga á Austurhlið hússins árið 2025.
Þak viðgert og málað árið 2021.
Húsið var málað og sprungufyllt árið 2020.
Vel staðsett íbúð í barnvænu hverfi, stutt í leik- og grunnskólann Heiðarskóla og alla helstu þjónustu.íbúð með frábæru útsýni.
Nánari upplýsingar veita:
Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
Hafþór Örn, löggiltur fasteignasali, S: 699-4040, hafthor@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.