Fasteignaleitin
Skráð 25. júlí 2025
Deila eign
Deila

Laugavegur 168 íb501 Heklureitur

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
151 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
615.232 kr./m2
Fasteignamat
33.300.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 2025
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2529790
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Fasteignasalan TORG Kynnir: Góð 3ja herbergja íbúð með svalir og bílastæði í bílakjallara. Íbúð merkt:501, sem skilast fullbúin með gólfefnum. Íbúðin er alls 75,5fm að stærð á 5. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 67,8fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu með útgengi út á svalir. Tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu í sameign merkt: 0007, skráð 7,7fm ásamt bílastæði í bílakjallara merkt: B47. Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Ragnar Guðmundsson, fasteignasali í GSM: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is 

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
Sækja söluyfirlit HÉR

Heklureiturinn. 
Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag.  Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu.

Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir. Nokkrar með sér inngangi og/eða inngangi af svalagangi. Allir stigagangar með lyftur.

Í fyrsta áfanga verða 82 íbúðir að Laugarvegi 168 sem eru til afhendingar haustið 2025.
Heildaruppbyggingin mun skila yfir 400 íbúðum alveg við miðborgina og verður umbylting í borgarmyndinni á þessum stað.

Um er að ræða glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Laugarveg þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og  nýjustu Siemens tækjum. Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Studio Homestead kom að hönnun innréttinganna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Quarts steinn er á borðum eldhúss og baðherbergis sem sérframleiddur er á Ítalíu frá Santamargherita. Eldhústæki eru frá Siemens. 

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

Skipulag:
Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174  sem verður byggt í áföngum. Fyrsta húsið sem nú er í byggingu er Laugavegur 168.

Skipulagið tekur mið af því að hámarka  gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni.

Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún

Hönnun:
Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu.

Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða.
Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
75.5 m2
Fasteignanúmer
2529790
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Númer eignar
01
Húsmat
25.650.000 kr.
Lóðarmat
7.650.000 kr.
Fasteignamat samtals
33.300.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2529790
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B4
Númer eignar
7
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skaftahlíð 8
Opið hús:06. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Skaftahlíð 8
Skaftahlíð 8
105 Reykjavík
125.2 m2
Fjölbýlishús
513
718 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Njálsgata 96
Skoða eignina Njálsgata 96
Njálsgata 96
105 Reykjavík
105.5 m2
Fjölbýlishús
522
923 þ.kr./m2
97.400.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 24
3D Sýn
Opið hús:06. ágúst kl 17:00-18:00
Skoða eignina Mávahlíð 24
Mávahlíð 24
105 Reykjavík
107.3 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
613
836 þ.kr./m2
89.700.000 kr.
Skoða eignina Mánatún 1
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Mánatún 1
Mánatún 1
105 Reykjavík
109.3 m2
Fjölbýlishús
211
823 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin