Í heildina er eignin skráð 55,3 fm stærð sem skiptist í 53,1 fm íbúð, 2,2 fm geymslu.
Í apríl 2024 var íbúðin endurnýjuð að innan á glæsilegan hátt og lítur hún vel út.
Nánari lýsing:Eldhús: með fallegri hvítri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél og ískáp, eyju með ofni og span helluborði og sætaplássi.
Stofa / borðstofa: með björtum glugga og útgengi út á lítinn pall sem snýr í vestur og þaðan út á grasbala.
Baðherbergi: með "walk in" sturtu, skáp undir og yfir vask, upphengdu salerni og flísum á veggjum og gólfi.
Svefnherbergi: rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi.
Geymsla: 2,2 fm sérgeymsla á sömu hæð og íbúð fylgir með.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg jarðhæð
Þvottahús: sameiginlegt á jarðhæð með tækjum sem húsfélagið á og fólk pantar tíma í.
Endurnýjanir í apríl 2024:
Baðherbergi endurnýjað (flísar 60x60 frá Álfaborg). Blöndunartæki í vaski og sturtu frá Gröhe. Spegill með lýsingu.
Eldhús endurnýjað með innréttingu frá Ikea og borðplötu frá Byko. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Veggpanill úr hnotu settur framan á eyju.
Nýjar innihurðir (Bauhaus).
Nýtt parket (Quickstep frá Harðviðarvali).
Nýtt rafmagn dregið í allar dósir og settir nýjir slökkvarar og tenglar. Einnig sett nýtt tengibox fyrir helluborð og eldavél.
Endurnýjaðar neysluvatnslagnir og ofn inn á á baði.
Íbúðin öll nýmáluð (1/2 hör) og gluggar málaðir hvítir.
Nýr dyrasími.
Upplýsingar veitir Þórarinn Friðriksson lögg.fasteignasali, sími 844-6353, netfang thorarinn@hofdi.is