Björt og vel skipulögð eign á vinsælum stað í Kópavogi
Vel staðsett við rólegan botnlanga í fjölskylduvænu hverfi. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.* 2014-2016: Múr á austur- og norðurhlið lagaður.
* 2020: Múr á suður- og vesturhlið lagaður. Skipt um rúður og ytri gluggakarma.
* 2022: Skipt var um þak og þakskegg.
* 2023: Nýtt klósett sett upp.
* 2024: Skipt um lekaliða og öryggi í rafmagnstöflu, settur nýr stafrænn rafmagnsmælir. Nýr bakarofn, helluborð og vaskur í eldhúsi.Forstofa með skápum og flísum á gólfi.
Stofa er mjög bört og rúmgóð með stórum gluggum á tvenna vegu. Útgengt á suður verönd. Parket á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu og góðu skápaplássi. Flísar á gólfi.
Tvö svefnherbergi, bæði rúmgóð og annað með fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi með baðkari, handklæðaofn og innréttingu undir skolvask. Flísar á gólfi og upp veggi.
Þvottahús og geymsla með glugga.
Útisvæði með afgirtum garði og verönd.
Eign sem vert er að skoða, í göngufæri við skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Tónlistarskóli Kópavogs, bókasafn og sundlaug eru í nágrenninu. Hverfið er vel tengt samgöngum og í nálægð við falleg græn svæði, göngu- og hjólreiðastíga. Nánari upplýsingar veita:Evert Guðmundsson Lgf. í síma nr 8233022 eða evert@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.