Björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á góðum stað miðsvæðis í Reykjavík.Húsið hefur fengið mikið viðhald sl. ár.
* Fallegt útsýni
* Gæludýr leyfð í stigaganginum
* 2017 var gler í gluggum til vesturs endurnýjað
* 2023-25 voru gluggar endurnýjaðir til austurs.
* 2024 var þakjárn & pappi á þaki endurnýjað
* Múrviðgerðir á húsi eru yfirstandandi en bráðlega að klárast. Greiðist úr hússjóði.Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
Birt stærð eignar samkv. FÍ er 78,10 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2026 er 50.500.000 kr.
Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu / borðstofu, svalir, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.Hol er með parket á gólfi.
Eldhús er dúklagt með innréttingu með helluborði, bakarofn, viftu og tengi fyrir uppþvottavél. Bjartur borðkrókur við glugga.
Stofu /
borðstofa er með parket á gólfi og útgengt út á rúmgóðar svalir. Fordæmi eru fyrir svalarlokunum. Fallegt útsýni.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með baðkar með sturtu, salerni og handlaug.
Sérgeymsla er í sameign á jarðhæð ásamt sameiginlegu
þvottahúsi.
Sérmerkt
bílastæði er á sameiginlegu bílaplani.
Frábær staðsetning miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og örstutt í stofnbraut. Göngufæri í alla þjónustu, verslun, skóla, íþróttir og útivist.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.