Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Glæsileg þriggja herbergja 86,4 fm kjallaraíbúð með sérinngangi í Teigahverfinu í Laugardal.Eignin skiptist í forstofu, gang/hol, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, geymslu og þvottahús.
Íbúðin var öll tekin í gegn árið 2019 og HAF Studio sá um hönnun. Öll gólfefni eru frá Parka, Oak Cream síldarbeinaparket á herbergjum og alrými, svartar Terazzo flísar á forstofu og baði.
Innréttingar frá HTH með sérsmíðuðum höldum frá HAF. Gólfhiti er í íbúðinni.
Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: Ýtið hér// Íbúðin er mikið endurnýjuð.
// Nóg af stæðum fyrir utan.
// Stór garður með sólríka hellulagða verönd til suðvesturs.
// Húsið er staðsett í afar rólegri götu og stutt í alla þjónustu.Nánari lýsing:Forstofa: Terazzo flísar á gólfi.
Hol: Svartir skápar frá HTH, síldarbeinaparket á gólfi.
Baðherbergi: Terazzo flísar á gólfi og sturtu, sérhönnuð baðinnrétting frá HAF. Stór gluggi gerir sturtuna bjarta og skemmtilega.
Eldhús: Innrétting frá HTH, spanhelluborð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, síldarbeinaparket á gólfi.
Stofa: Rúmgótt og bjart rými, opið inn í eldús, síldarbeinaparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Hvítir skápar frá Ikea með sérsmíðuðum höldum, síldarbeinaparket á gólfi.
Barnaherbergi: Síldarbeinaparket á gólfi.
Þvottahús: Er í sameign.
Geymsla: Er í sameign.
Eignin er á frábærum stað í feykivinsælu og grónu hverfi í Laugarnesi. Í göngufæri er leik- og grunnskóli, sundlaug og líkamsrækt ásamt góðu úrvali af íþróttastarfi í Laugardalnum.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.