Fasteignaleitin
Skráð 12. ágúst 2026

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
113.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
121.900.000 kr.
Fermetraverð
1.073.063 kr./m2
GM
Gabriel Máni Hallsson
Löggiltur fasteignasali
https://miklaborg.isEignalisti
3. hæð
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
2532645
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi

Miklaborg kynnir: Valshlíð 3 - Íbúð 307.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin er fullbúin og til afhendingar við kaupsamning.

Á sölusíðu eignarinnar í færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á Gabriel Mána Hallsson löggiltan fasteignasala í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is eða Svan Gunnar Gunnlaugsson í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Stórglæsileg og vönduð 4ja herbergja endaíbúð á 3. hæð. Birt stærð er 113,6 fm þar af 11,4 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 3 svefnherbergi, þar af eitt með útgengi á svalir, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2.

Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er úr anddyri beint inn í rúmgott og bjart alrými, eldhús með eyju og stofu/borðstofu með útgengi á rúmgóðar vestursvalir með óhindruðu útsýni yfir Vatnsmýrina. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum og útgengi á svalir sem snúa inn í inngarð. Tvö svefnherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Innaf baðherbergi er þvottaherbergi með ljósri innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Sérgeymsla íbúðar í kjallara merkt er 0038, Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúðhefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr auglýstri íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Nánari upplýsingar veita:

Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskihlíð 16
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:27. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Eskihlíð 16
Eskihlíð 16
105 Reykjavík
119.1 m2
Fjölbýlishús
311
730 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Frakkastígur 8
Bílastæði
Skoða eignina Frakkastígur 8
Frakkastígur 8
101 Reykjavík
100.6 m2
Fjölbýlishús
312
983 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Lyngás 1
Bílastæði
Opið hús:30. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Lyngás 1
Lyngás 1
210 Garðabær
99 m2
Fjölbýlishús
413
807 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Sóltún 33
Opið hús:26. ágúst kl 18:00-18:30
IMG_1228.JPG
Skoða eignina Sóltún 33
Sóltún 33
800 Selfoss
136.2 m2
Raðhús
212
587 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin