Fasteignaleitin
Opið hús:20. sept. kl 14:30-15:00
Skráð 18. sept. 2025
Deila eign
Deila

Frakkastígur 8E

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
100.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
993.042 kr./m2
Fasteignamat
86.100.000 kr.
Brunabótamat
71.070.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2019
Lyfta
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2360527
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Snúa til norðvestur
Lóð
1,06
Upphitun
Hitaveita / Gólfhiti á baðherbergi
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Verið er að ljúka við að klára húsið að utan. Kostnaður við það greiðist af seljendum. 
Gallar
Leki var við svalahurð. Viðgerð hefur farið fram. 
Domusnova og Ingunn Björg löggiltur fasteignasali kynna einstaklega bjarta, glæsilega og vandaða 3ja herbergja íbúð með aukinni lofthæð og stæði í bílakjallara. Íbúðin er á 4. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Frakkastíg 8E. Skjólgóðar svalir sem snúa til norðvesturs með útgengi bæði frá stofu og hjónaherbergi. Sérlega góð hljóðeinangrun er í íbúðinni sem útilokar skarkala frá iðandi mannlífi miðborgarinnar.

Við hönnun Frakkastígsreitsins sem er klasi húsa við Frakkastíg, Hverfisgötu og Laugaveg var horft til þess að hanna byggingar sem falla vel að umhverfinu. Húsin ramma inn skjólgóðan garð með fallegri lýsingu, beðum og gróðri.
 

Frábær staðsetning í hjarta höfuðborgarinnar í göngufæri við verslanir, kaffihús, veitingastaði, menningarviðburði, Sundhöll Reykjavíkur og fallegar gönguleiðir í Þingholtunum og við sjávarsíðuna.

Skipulag eignarinnar er eftirfarandi: Forstofa, eldhús, stofa og borðstofa liggja saman í opnu og björtu rými, 2 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Skv. HMS er eignin skráð 100,6 fm2 þar af er 8,3 fm geymsla. Fasteignamat 2026 verður 94.900.000.

 
  • Endaíbúð með gluggum á þrjá vegu í alrými 
  • Gólfsíðir gluggar að mestu 
  • Sérsmíðaðar innréttingar frá Voke III
  • Quartzteins borðplötur í eldhúsi og á baðherbergi
  • Vönduð eldhús - hreinlætis og blöndunartæki 
Nánari upplýsingar veitir:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is


 Ítarlegri lýsing eignar:
Forstofa: Með góðum fataskápum.
Alrými: Eldhús borðstofa og stofa eru mjög björtu og opnu rými. Gluggar á þrjá vegu.
Eldhús: Í eldhúsi er vönduð sérsmíðuð innrétting með eyju frá Voke III. Quartzsteins borðplötur, innbyggður ísskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél. Ofn í vinnuhæð. Span helluborð með háf fyrir ofan. Flísar á vegg við helluborð. 
Stofa/ borðstofa: Rúmgott, fallegt og bjart rými, gólfsíðir gluggar á tvo vegu. Útgengt á rúmgóðar vestursvalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með sérsmíðuðum fataskápum sem ná upp í loft og útgengi á rúmgóðar vestursvalir. 
Svefnherbergi 2: Rúmgott og bjart með sérsmíðuðum fataskáp.
Baðherbergi: Baðherbergi, fliísalagt gólf og veggir að hluta. Sérsmíðuð rúmgóð innrétting, stór spegill á vegg, "walk in sturta" með glerskilrúmi. Vegghengt salerni. Tengi og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. 
Bílastæði: Bílastæði fylgir íbúðinni í lokuðum bílakjallara. 
Geymsla: Rúmgóð 8,3 fm2 geymsla er í sameign. 
Hjóla og vagnageymsla er einnig í sameign.

Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/09/202061.100.000 kr.63.400.000 kr.100.6 m2630.218 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2019
Fasteignanúmer
2360527
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
3
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.670.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Nýlendugata 34
Skoða eignina Nýlendugata 34
Nýlendugata 34
101 Reykjavík
91.5 m2
Fjölbýlishús
412
1071 þ.kr./m2
98.000.000 kr.
Skoða eignina Lindargata 33
Bílastæði
Skoða eignina Lindargata 33
Lindargata 33
101 Reykjavík
95.3 m2
Fjölbýlishús
312
1017 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V3 íb 306
Bílastæði
Vesturvin V3 íb 306
101 Reykjavík
92.1 m2
Fjölbýlishús
312
1124 þ.kr./m2
103.500.000 kr.
Skoða eignina Bankastræti 11 - Tvær íbúðir saman
Bankastræti 11 - Tvær íbúðir saman
101 Reykjavík
131.3 m2
Fjölbýlishús
523
759 þ.kr./m2
99.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin