Prima fasteignasala og Hrönn Ingólfsdóttir lgfs. kynna: Einstaklega glæsilega og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með um 40fm palli við Stakkholt 2a í Reykjavík. Eignin er skráð alls
72,1 fm að stærð og skiptist þannig: Forstofa, baðherbergi, eldhús, stofa og eitt gott svefnherbergi ásamt geymslu í sameign. Einstaklega björt og vel skipulögð íbúð.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í s: 692 3344 eða hronn@primafasteignir.is.Nánari lýsing eignar:Forstofa: Góður fataskápur.
Eldhús: Rúmgóð og falleg innrétting með ísskáp og innbyggðri uppþvottavél sem fylgja.
Stofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum. Útgengt út á um 40fm pall.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með góðum skápum og gluggum á tvo vegu.
Baðherbergi: Flísalagt að hluta. Fín innrétting, rúmgóð sturta og upphengt salerni. Góðar innréttingar fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla í sameign. Lyfta er í húsinu og sameiginleg vagna og hjólageymsla í sameign.
Þetta er frábærlega vel staðsett eign þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og er í göngufæri frá miðsvæði borgarinnar.
Möguleiki er fyrir kaupanda að ganga inní samkomulag núverandi eigenda um leigu á bílastæði í lokuðum bílakjallara.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í s: 692 3344 eða hronn@primafasteignir.is.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.