Stefán kynnir Bæjartún 6. Um er að ræða fallegt 328,5 fm einbýlishús með aukaíbúð á þessum eftirsótta stað í Fossvogsdalnum Kópavogsmegin.
Möguleiki er á að búa til aðra útleigueiningu, það er að segja 2 aukaíbúiðir nú þegar er ein útleigu íbúð.
Linkur á Teikningar
https://www.map.is/kopavogur/Nánari lýsingAnddyri er með flísum á gólfi og fataskáp
Gengið er upp nokkrar tröppur og við tekur
hol, þaðan er útgengt á lítinn sólpall.
Eldhús er með ágætis innréttingu og borðkrók.
Stofa er rúmgóð og björt með ágætu útsýni að Esju.
Á herbergisgangi eru
fjögur svefnherbergi, öll með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með sturtu og baðkari. Útgengt er á
sólpall í enda herbergisgangs.
Úr anddyri er einnig gengið niður og viðtekur rými sem að býður upp á marga möguleika (aukaíbúð m.a).
Rými þetta samanstendur af Sjónvarpsholi, herbergi, þvottahúsi, salerni og stóri geymslu (30 - 35 fm.)
Aukaíbúð er með sér inngang 63,4 fmAlrými sem samanstendur af stofu og eldhúsi, búr/geymsla inn af eldhúsi Salerni með sturtu.
Svefnherbergi með fataskáp.
Bískúr er sérstæður 33.8 fm. Hellulagt bílaplan með hitalögn undir, heitt og kalt vatn, geymsla.
Annað húsið er í góðu ástandi. Innréttingar og allt sem tengist frágang innhúss er frá árinu 1990 c.a. ytra byrði húss er í góðu ástandi og hefur húsinu sjálfu verið mjög vel viðhaldið Garður er mjög snyrtilegur. Heimild er byggingar á sólstofu út frá holi að sögn seljanda.
Stutt í fallegt og gott útivistarsvæði í Fossvogsdalnum með einstakri náttúru og göngu/hjólaleiðum í allar áttir. Allar helstu umferðaræðar í næsta nágrenni og skóli og leikskóli í stuttu göngufæri.
Allar nánari upplýsingar veitir Stefán sími 896-9303 löggiltur fasteignasali eða
stefan@domusnova.is