Fasteignaleitin
Skráð 12. júní 2026

Hulduland 14

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
195.1 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
179.900.000 kr.
Fermetraverð
922.091 kr./m2
Fasteignamat
149.050.000 kr.
Brunabótamat
100.470.000 kr.
HJ
Helgi Jóhannes Jónsson
Fasteignasali
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2037482
Landnúmer
108791
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Upphitun
Hitaveita / gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Fasteignasalan TORG kynnir:
Mjög glæsilegt 5-6 herbergja 195,1 fm endaraðhús á pöllum ásamt bílskúr. Eignin hefur fengið gott viðhald og mikið endurnýjað í gegnum árin. Mjög fallega hannaður garður, viðhaldslítill með stórri afgirtri verönd, heitum potti og grillskýli. Húsið hefur fengið gott viðhald að utan og lóðin umhverfis húsið hefur öll verið endurgerð. Bílastæði er fyrir framan bílskúrinn í lengju fyrir ofan húsið. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi (möguleiki á fjórða), tvö baðherbergi, tvær samliggjandi stofur, þvottahús og bílskúr. Allar nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma: 780-2700 eða helgi@fstorg.is eða Sigríður Rut löggiltur fasteignasali  í síma: 699-4610 eða siggarut@fstorg.is

NÁNARI LÝSING:

Komið er inn í rúmgóða forstofu með miklu skápaplássi, flísar á gólfi. Fallegt eldhús með hvítri / eikarinnréttingu, granít á borðum, góður borðkrókur, flísar á gólfi. Hiti er í gólfum í forstofu og eldhúsi. Gengið er niður í mjög fallega og rúmgóða stofu og borðstofu með arni og parketi á gólfi. Gólfsíðir gluggar hleypa mikilli birtu inn í rýmið. Stórir gluggar með útgengi út á verönd með heitum potti og grillhúsi. Stórt hjónaherbergi með fataherbergi, parket á gólfi. Inn af herbergi er baðherbergi með sturtu, innréttingu við vask, flísar á gólfi og veggjum. Inn af baðherbergi er gott þvottahús með glugga. Frá holi miðhæðar er gengið upp á efri hæðina. Tvö góð herbergi með skápum og parketi á
gólfi. Útgengt út á suðursvalir frá einu herbergjanna (möguleiki á að bæta þriðja herberginu við). Baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu, innréttingu, flísar á gólfi og veggjum. Garðurinn er fallega hannaður með stórri verönd, heitum potti, grillhúsi og setubekkjum. Hellulagður stígur meðfram gafli hússins. Bílskúrinn er í lengju fyrir ofan húsið. Stæði fyrir framan skúr og hleðslustöð fyrir rafbíl.
Samkvæmt skráningu Fasteignaskrár Íslands er íbúðarrýmið skráð 175,7 fm og bílskúrinn 19,4 fm.
Fallegt og mjög vel skipulagt endaraðhús á þessum sívinsæla stað.

Allar nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma: 780-2700 eða helgi@fstorg.is eða Sigríður Rut Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali gsm: 699-4610 eða siggarut@fstorg.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/02/201657.400.000 kr.62.500.000 kr.195.1 m2320.348 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1976
19.4 m2
Fasteignanúmer
2037482
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
07
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.870.000 kr.

Myndir (60)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fljótasel 22
Bílskúr
Skoða eignina Fljótasel 22
Fljótasel 22
109 Reykjavík
260.5 m2
Raðhús
724
537 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Skálagerði 9
Skoða eignina Skálagerði 9
Skálagerði 9
108 Reykjavík
66.5 m2
Fjölbýlishús
312
901 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
131.8 m2
Fjölbýlishús
423
1244 þ.kr./m2
164.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
123.2 m2
Fjölbýlishús
312
1291 þ.kr./m2
159.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin