Fasteignaleitin
Skráð 18. ágúst 2026

Hverfisgata 68A

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
37.6 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
42.900.000 kr.
Fermetraverð
1.140.957 kr./m2
Fasteignamat
39.250.000 kr.
Brunabótamat
21.250.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1915
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2004956
Landnúmer
101496
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
00
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
Mhl. 01. 17,02% - Mhl. 02 -. 1,48
Upphitun
Hitaveita og gólfhitakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu sjarmerandi og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð við Hverfisgötu 68A í miðborg Reykjavíkur. Um er að ræða bjarta og fallega eign í húsi byggt 1915. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, bjarta stofu, rúmgott svefnherbergi og baðherbergi. Baðherbergi og eldhús töluvert endurnýjað árið 2024, auk þess voru ofnar í íbúðinni fjarlægðir og gólfhiti lagður í staðinn. Eigninni fylgir jafnframt 50% hlutur í (7,5 m²) geymsluskúr. Sameiginlegt þvottahús er í húsinu með þvottavél og þurrkara í eigu húsfélagsins. Staðsetningin er eins miðsvæðis og best verður á kosið, í göngufæri við fjölbreytta verslun, veitingastaði, kaffihús, menningu og alla helstu þjónustu miðborgarinnar. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 

Birt stærð íbúðar skv. fasteignaskrá HMS er 37,6 m², og eru þeir allir innan íbúðar. Að auki er skráð 50% hlutdeild í 7,5 m² geymsluskúr sem er í sameign sumra.

Nánari lýsing eignar
Anddyri: Komið er inn um sérinngang í anddyri sem er opið inn í eldhús.
Eldhús: Hvít innrétting með góðu skápa- og skúffuplássi, borðplötu og opnum hillum. Eldunaraðstaða er með helluborði og bakaraofni.
Stofa: Björt og notaleg stofa sem snýr út að götu. Rýmið er vel nýtt og rúmar bæði setu- og borðstofuaðstöðu.
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart svefnherbergi með glugga út að framgarði.
Baðherbergi: Með sturtuaðstöðu, salerni, handlaug og opnanlegum glugga.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í húsinu með þvottavél og þurrkara í eigu húsfélagsins sem íbúar hafa afnot af.
Geymsluskúr: Eigninni fylgir helmingshlutur í 7,5 m² geymsluskúr sem er skráð sem sameign sumar. 

Endurbætur að sögn seljanda:
2024: Baðherbergi endurnýjað með nýjum flísum á gólf og veggi, nýrri sturtu, blöndunartækjum, handlaug og salerni. Ný eldhúsinnrétting sett upp ásamt nýjum bakaraofni og vaski.
Gólfhiti lagður í íbúðina og eldri ofnar fjarlægðir. Gólf íbúðar flotuð með sjónfloti. Stigi að sameiginlegu þvottahúsi steyptur upp að nýju.
2025: Húsið málað að utan. Ný þakrenna sett upp fyrir utan íbúðina. 

FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉR

Staðsetning
Hverfisgata 68A er einstaklega vel staðsett í hjarta Reykjavíkur þar sem líf og þjónusta miðborgarinnar eru í næsta nágrenni. Stutt er í Laugaveg, fjölbreytt úrval veitingastaða og kaffihúsa, verslanir, menningu og afþreyingu. Um er að ræða skemmtilega miðborgareign þar sem flest það sem borgin hefur upp á að bjóða er í þægilegu göngufæri.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/02/202435.800.000 kr.37.000.000 kr.37.6 m2984.042 kr.
08/03/202123.350.000 kr.29.700.000 kr.37.6 m2789.893 kr.
20/03/201717.950.000 kr.25.900.000 kr.37.6 m2688.829 kr.
11/03/201513.750.000 kr.15.000.000 kr.37.6 m2398.936 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Snorrabraut 62
Skoða eignina Snorrabraut 62
Snorrabraut 62
105 Reykjavík
52.6 m2
Fjölbýlishús
211
1158 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Skoða eignina Grenimelur 47
Bílskúr
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-13:30
Skoða eignina Grenimelur 47
Grenimelur 47
107 Reykjavík
171.3 m2
Hæð
514
922 þ.kr./m2
157.900.000 kr.
Skoða eignina Eskihlíð 16
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:27. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Eskihlíð 16
Eskihlíð 16
105 Reykjavík
119.1 m2
Fjölbýlishús
311
730 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-14:00
Skoða eignina Laugavegur 168
Laugavegur 168
105 Reykjavík
75.5 m2
Fjölbýlishús
312
1125 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin