Fasteignaleitin
Skráð 7. maí 2025

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
69.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
53.925.000 kr.
Fermetraverð
775.899 kr./m2
Fasteignamat
68.400.000 kr.
Mynd af Aron Már Smárason
Aron Már Smárason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2532606
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B3 - Fullgerð bygging að utan og tilbúin til innréttingar

Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 3 – Íbúð 211.

Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup. Fullt verð: 71.900.000 kr.

Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum.

S8-Sameign í boði:

  • Þú fjármagnar 75% — 53.925.000 kr. (lágmark 75%)
  • S8 ehf. á 25% hlut í allt að 10 ár
  • Lágmark 10% eigið fé (5.392.500 kr.)
  • Nýtir þú kauprétt innan 3 ára færðu leigugreiðslur endurgreiddar
  • Nánari upplýsingar á s8.is/joint

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Sendu fyrirspurn á heimaf@heimaf.is eða hringdu í síma 5832000 og fáðu allar upplýsingar um íbúðina. Hafðu samband og bókaðu skoðun hjá okkur.

2ja herbergja íbúð á 2. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns, 69,5 fm (þar af 5,2 fm geymsla í kjallara). Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á suðursvalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og gólfefni frá Álfaborg. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Mjöll 1 — ljótt hvítt þema.

Í anddyri er góður fataskápur. Bjart alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir. Hvít eldhúsinnrétting með hvítum quartz-steini á borðum og krómuðum blöndunartækjum. Innbyggður ísskápur. Hjónaherbergi með fataskápum. Baðherbergi með walk-in sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur með lýsingu. Krómuð blöndunartæki. Afmörkuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla í kjallara (0056). Sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingu þar sem íbúar hafa forgang.

Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup. Fullt verð: 71.900.000 kr.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Heimasíða verkefnis: Hlíðarhorn

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (11)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Egilsgata 19
Skoða eignina Egilsgata 19
Egilsgata 19
310 Borgarnes
145.6 m2
Fjölbýlishús
413
Fasteignamat 48.450.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Tunguvegur 1
Rúmgóð stofa
Skoða eignina Tunguvegur 1
Tunguvegur 1
108 Reykjavík
87 m2
Fjölbýlishús
412
836 þ.kr./m2
72.700.000 kr.
Skoða eignina Dvergaholt 9 íbúð 211
Bílastæði
Dvergaholt 9 íbúð 211
603 Akureyri
76.7 m2
Fjölbýlishús
312
872 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Kristnibraut 10
Skoða eignina Kristnibraut 10
Kristnibraut 10
113 Reykjavík
106.8 m2
Fjölbýlishús
312
748 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin