Fasteignaleitin
Skráð 4. mars 2026

Langimói 7 íbúð 102

Nýbygging • FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-603
51.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
970.817 kr./m2
Fasteignamat
18.400.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2533782
Landnúmer
236411
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
2025/2026
Raflagnir
2025/2026
Frárennslislagnir
2025/2026
Gluggar / Gler
2025/2026
Þak
2025/2026
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
3,35
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Langimói 7 íbúð 102 - Nýbygging - Vönduð 2ja herbergja íbúð með sér inngangi á neðri hæð í glæsilegu fjölbýli í Móahverfi - stærð 51,4 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu.

* Eignin er timburhús, krosslímdar timbur einingar, clt og klætt að utan með viðhaldsfrírri álklæðningu.
* Vandaðar innréttingar frá Tak innréttingum fyrir utan baðherbergi.
* Ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu.
* Hvítar innihurðar.
* Loftskiptikerfi.
* Hljóðdúkur í loftum. 
* Áætlaður afhendingartími eignar er júlí 2026


Forstofa er með flísum á gólfi 60*60 og fataskáp. 
Eldhús, Vönduð innrétting með ísskáp með frysti og uppþvottavél sem fylgja með við sölu.
Stofa og eldhús eru í opnu rými. Þar er harðparket á gólfi og hurð til vesturs út á steypta verönd, skráð 7,7 m² að stærð. 
Svefnherbergið er með harðparketi á gólfi og fataskáp. Stærð herbergis er skv. teikningum 8,5 m². 
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir með gráum flísum. Vönduð hvít innrétting og speglaskápur, upphengt wc og sturta með glerhurðum. Stæði er í innréttingunni fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 
Geymsla er með harðparketi á gólfi. Stærð geymslu er skv. teikningum 2,8 m².

Annað
- Sameiginlegt inntaksrými og vagnageymsla er fyrir miðju í húsinu á neðri hæðinni.
- Sameiginlegt hjólaskýli er fyrir framan húsið.
- Nánari skilalýsingu má nálgast hjá fasteignasölu.
- Byggingarverktaki: Valsmíði ehf.

Eignin er í einkasölu

Kaupandi greiðir skipulagsgjald eignar, 0,3% af brunabótamati eignar þegar það verður lagt á.

Þrívíddar teikningar eru eingöngu til hliðsjónar - eitthvað misræmi getur verið á milli þeirra og aðalteikninga. 

Upplýsingar í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Leitast verður við að halda sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma.
Allt efni er birt með fyrirvara um hugsanlegar villur.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/03/20263.700.000 kr.48.500.000 kr.51.4 m2943.579 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (7)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mánagata 20
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:18. apríl kl 12:00-12:30
Skoða eignina Mánagata 20
Mánagata 20
105 Reykjavík
74.2 m2
Fjölbýlishús
211
942 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Smáratún 32
Skoða eignina Smáratún 32
Smáratún 32
230 Reykjanesbær
68.6 m2
Hæð
412
684 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina Egilsgata 19
Skoða eignina Egilsgata 19
Egilsgata 19
310 Borgarnes
145.6 m2
Fjölbýlishús
413
Fasteignamat 48.450.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Sólbakki 31
Skoða eignina Sólbakki 31
Sólbakki 31
310 Borgarnes
102.1 m2
Atvinnuhúsn.
392 þ.kr./m2
40.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin