Fasteignaleitin
Opið hús:16. júní kl 17:00-17:30
Skráð 12. júní 2025
Deila eign
Deila

Lundarbrekka 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
96.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.900.000 kr.
Fermetraverð
702.899 kr./m2
Fasteignamat
60.900.000 kr.
Brunabótamat
50.900.000 kr.
Mynd af Jóhanna Kristín Tómasdóttir
Jóhanna Kristín Tómasdóttir
löggiltur fasteignasali
Byggt 1969
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2064048
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
síðan húsið var byggt
Raflagnir
síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
tvöfalt
Þak
málað 2017
Svalir
suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög mikið endurnýjuð, rúmgóð og björt þriggja herbergja íbúð á annari hæð í fjölbýli við Lundarbrekku 6 í Kópavogi. Sérinngangur af svölum. Árið 2023 var íbúðin öll tekin í gegn, þ.e. eldhús opnað inn í stofu og innrétting og tæki endurnýjuð. Þá voru skápar, hurðir og gólfefni endurnýjuð einnig. Áður var baðherbergi  uppgert (2020), húsið málað að utan og viðgert, þak yfirfarið og svalahurð og allir gluggar á suðurhlið endurnýjaðir (2017). Þá var teppi í sameign endurnýjað árið 2023. Ákveðið hefur verið að endurnýja skólpið í húsinu á þessu ári og mun kostnaður af því falla á seljanda fari viðgerð fram innan árs frá kaupunum. Sameiginlegt þvottahús á hæðinni og sérgeymsla og sameiginleg vagna- og hjólageymsla í sameign. Þá er einnig er búið að ganga frá lóð og er fjöldi malbikaðara bílastæða norðan við húsið með rafbílahleðslum. Stór grasflöt til suðurs.
Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín  Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
Nánari lýsing:
Íbúðin er skráð 96,6fm (þar af geymsla 8,5fm) í vel við höldnu fjölbýli byggðu 1969. Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi ásamt gluggalausu  herbergi sem gæti nýst t.d sem vinnuherbergi/fataherbergi og/eða aukageymsla. Sameiginlegt rúmgott þvotta- og þurrkherbergi er á hæðinni með sér tenglum fyrir hverja íbúð. Sér geymsla er í sameign ásamt hjóla og vagnageymslu. Sameign er snyrtileg.
Forstofa: Með þreföldum fataskáp, millihurð með spegli.
Eldhús: Opið inn í stofu með sérsmíðaðri innréttingu frá Innlifun og vönduðum tækjum. Eyja með 4 skúffum og pláss fyrir 3 barstóla skiptir rýminu. Fallegt útsýni í norðurátt úr eldhúsi.
Stofa: Stórir endurnýjaðir gluggar í suður sem hleypa góðri birtu inn og útgengt er á svalir til suðurs.
Svefnherbergisgangur: 
Barnaherbergi:
Ágætlega rúmgott. Sérhönnuð plíseruð gluggatjöld sem útloka alveg alla birtu.
Hjónaherbergi: Rúmgott með nýjum fjórföldum fataskáp með samskonar gluggatjöldum og í barnaherbergi.
Vinnu/fataherbergi: Gluggalaust en veggur nær ekki upp í loft og hleypir því birtu inn. Nýtist auðveldlega sem skrifstofa, fataherbergi og/eða aukageymsla.                                                                                                                
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi sem var uppgert 2020. Flísalagt er í hólf og gólf, salerni er upphengt, stór sturta með glerskilrúmi, ljós skápur undir vaski, handklæðaofn og hiti í gólfi.
Gólfefni: Nýlegt harðparket er á allri íbúðinni nema á baðherbergi.
Sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi: Á hverri hæð hússins er sameiginlegt þvottaherbergi fyrir hverja hæð. Þar er góður gluggi, með sér tenglum fyrir hverja íbúð, snúrum og lökkuðu gólfi.
Sér geymsla og sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð hússins með sérinngangi af lóð.
Gullfalleg og næstum algerlega uppgerð 3ja herbergja íbúð á frábærum stað í austurbæ Kópavogs. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/05/202354.600.000 kr.56.900.000 kr.96.6 m2589.026 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarhjalli 71
Hlíðarhjalli 71
200 Kópavogur
80.6 m2
Fjölbýlishús
312
837 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Nýbýlavegur 72
3D Sýn
Opið hús:16. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Nýbýlavegur 72
Nýbýlavegur 72
200 Kópavogur
86.1 m2
Fjölbýlishús
312
812 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Engihjalli 3
Skoða eignina Engihjalli 3
Engihjalli 3
200 Kópavogur
107.9 m2
Fjölbýlishús
514
638 þ.kr./m2
68.800.000 kr.
Skoða eignina Nýbýlavegur 102
Bílskúr
Opið hús:16. júní kl 17:00-17:30
Nýbýlavegur 102
200 Kópavogur
103.5 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
675 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin