Fasteignaleitin

Enn hækk­ar íbúða­verð hratt en vís­bend­ing­ar um við­snún­ing

Þrátt fyrir ríflega 2ja prósenta hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í júní eru vísbendingar um að íbúðamarkaður sé að þokast í átt að betra jafnvægi eftir mikla eftirspurnarspennu og framboðsskort síðustu fjórðunga. Vaxandi framboð nýrra íbúða ásamt strangari lánaskilyrðum, hærri vöxtum á íbúðalánum og lækkandi væntingum almennings um efnahagsþróunina er meðal skýringa á þeirri þróun.

20 júlí 2022
Mynd af Íslandsbanki
Íslandsbanki
Greiningadeild Íslandsbanka
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,2% í júnímánuði frá mánuðinum á undan samkvæmt gögnum frá Þjóðskrá. Þótt um sé að ræða býsna myndarlega mánaðarhækkun hefur verðið þó ekki hækkað hægar á þennan mælikvarða frá janúar síðastliðnum. Einkum virðist viðsnúningur vera skarpur í hækkunartakti sérbýla en verð þeirra hækkaði milli mánaða um 0,8% á meðan verð á íbúðum í fjölbýli hækkaði um 2,2%.
Undanfarna 12 mánuði hefur íbúðaverð hækkað um 25% á höfuðborgarsvæðinu. Svo hraður hefur 12 mánaða hækkunartakturinn ekki verið frá ársbyrjun 2006. Takturinn í verðhækkun er áþekkur hvort sem um er að ræða sérbýli (24,5% árshækkun) eða fjölbýli (25,1% árshækkun).

Er markaðurinn að þokast í átt að jafnvægi?

Nokkuð bætti í umsvif á íbúðamarkaði höfuðborgarsvæðisins í vor eftir fremur fá viðskipti á fyrsta þriðjungi ársins, sé miðað við misserin þar á undan. Í maí var 667 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í maí en þar af voru fjölbýli 524 og sérbýli 76 í viðkomandi viðskiptum. Slíkum viðskiptum fjölgaði um þriðjung milli mánaða en fækkaði um fjórðung frá maí árið áður. Ekki liggja enn fyrir gögn um veltu á íbúðamarkaði í júnímánuði.
Aðrar formlegar og óformlegar vísbendingar um markaðinn benda einnig til þess að hugsanlega sé hann heldur að kólna og þokast í átt að betra jafnvægi. Í mánaðarskýrslu HMS er fjallað um nýjustu vendingar á íbúðamarkaði. Þar er bent á að íbúðum til sölu á höfuðborgarsvæðinu hafi fjölgað úr 503 í maíbyrjun í 733 í byrjun júlí. Þótt síðarnefnda talan sé lág í sögulegu samhengi er þó um 46% aukningu framboðs að ræða frá maíbyrjun til fyrstu viku júlí á þennan mælikvarða. Tekið er fram að fjölgunin eigi sér ekki rót í fleiri nýjum íbúðum til sölu heldur meðal eldri íbúða. Þá lækkaði hlutfall íbúða sem seldist yfir ásettu verði milli mánaða í maí eftir að hafa náð sögulegu hámarki fyrr á árinu og svipaða sögu má segja af meðalsölutíma íbúða á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt skýrslu HMS.
Vaxtahækkun Seðlabankans um 4 prósentur undanfarið ár í því skyni að sporna við vaxandi verðbólguþrýstingi, þar sem ört hækkandi íbúðaverð á stóran hlut að máli, hafa leitt til samsvarandi hækkunar á vaxtakjörum óverðtryggðra íbúðalána hjá bönkum og lífeyrissjóðum. Á sama tíma hefur fjármálastöðugleikanefnd bankans hert nokkuð á reglum um hámark á veðsetningarhlutfalli og greiðslubyrði af nýjum íbúðalánum. Hugsanlega gætu aðgerðir Seðlabankans loks verið farnar að bíta á eftirspurnarhlið markaðarins en eftirspurnin hafði fram að þessu virst lítt næm fyrir auknu peningalegu aðhaldi.

Raunverð íbúða víða hækkað verulega

Mikil hækkun íbúðaverðs undanfarin misseri er ekki bundin við Ísland heldur hefur sú þróun verið keimlík víða í þróuðum ríkjum. Sem dæmi má nefna að samkvæmt gögnum Seðlabankans hækkaði raunverð íbúðarhúsnæðis um 23% í Bandaríkjum frá lokafjórðungi ársins 2019 fram til fyrsta fjórðungs þessa árs. Í Svíþjóð var hækkunin 22% á þennan kvarða, í Noregi 14% og í Bretlandi 13%. Til samanburðar hækkaði raunverð íbúðarhúsnæðis um 17% á tímabilinu hér á landi. Það hefur hins vegar ekkert lát verið á raunverðshækkun allra síðustu mánuðina hérlendis á meðan vísbendingar eru um nokkurn viðsnúning víða meðal landanna í kring um okkur.

Horfur á betra jafnvægi á markaði þegar frá líður

Líkt og fram kom í þjóðhagsspá okkar sem út kom í maí síðastliðnum teljum við forsendur fyrir því að íbúðaverð hækki nokkuð hratt áfram næstu mánuðina. Vonandi og væntanlega verður þó samspil aukins framboðs á íbúðamarkaði og kólnandi eftirspurnar til þess að hægja á hækkun íbúðaverðs þegar nær dregur áramótum. Í því sambandi má benda á að samkvæmt HMS er velta í byggingariðnaði meiri en hún hefur verið í fjölda ára, sé leiðrétt fyrir verðlagsþróun. Svipaða sögu segja tölur um fjölda starfandi í greininni. Vekur það bjartsýni um að framboð nýrra íbúða sé á uppleið á komandi fjórðungum.
Í þjóðhagsspá okkar spáðum við því að íbúðaverð muni hækka um ríflega 22% í ár en hægja muni talsvert á hækkunartaktinum eftir því sem líður á komandi vetur. Um mitt ár 2023 verði komin ró á markaðinn með hóflegri verðhækkunum og betra jafnvægi milli eftirspurnar og framboðs. Við erum enn bjartsýn á að það verði niðurstaðan.

Höfundur:
Jón Bjarki Bents­son - Aðalhagfræðingur Íslandsbanka
Grein birtist upphaflega á vef Íslandsbanka

Vinsælar eignir

Skoða eignina Hjarðarlundur 7
Bílskúr
Opið hús:08. apríl kl 16:15-17:00
Skoða eignina Hjarðarlundur 7
Hjarðarlundur 7
600 Akureyri
200.7 m2
Einbýlishús
614
687 þ.kr./m2
137.900.000 kr.
Skoða eignina Nönnugata 1
Opið hús:12. apríl kl 12:00-12:30
Skoða eignina Nönnugata 1
Nönnugata 1
101 Reykjavík
19.4 m2
Fjölbýlishús
11
1284 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Skoða eignina Álfaskeið 14
Skoða eignina Álfaskeið 14
Álfaskeið 14
220 Hafnarfjörður
99.8 m2
Hæð
412
700 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Skólabraut 1
Opið hús:09. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Skólabraut 1
Skólabraut 1
220 Hafnarfjörður
73.2 m2
Fjölbýlishús
32
854 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Skyggnisbraut 17
Bílastæði
Opið hús:08. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Skyggnisbraut 17
Skyggnisbraut 17
113 Reykjavík
51.6 m2
Fjölbýlishús
211
1016 þ.kr./m2
52.447.863 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 47
Opið hús:09. apríl kl 17:00-17:30
móa_vefur (26).jpg
Skoða eignina Sólvallagata 47
Sólvallagata 47
101 Reykjavík
210 m2
Einbýlishús
734
1071 þ.kr./m2
225.000.000 kr.
Skoða eignina Bragagata 25
Opið hús:09. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Bragagata 25
Bragagata 25
101 Reykjavík
65.6 m2
Fjölbýlishús
311
1066 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Kjarrhólmi 8
Opið hús:07. apríl kl 17:00-17:20
Skoða eignina Kjarrhólmi 8
Kjarrhólmi 8
200 Kópavogur
84.4 m2
Fjölbýlishús
312
859 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Langeyrarvegur 16
Opið hús:07. apríl kl 17:00-17:45
Langeyrarvegur 16
220 Hafnarfjörður
107.7 m2
Einbýlishús
613
928 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Álfhólsvegur 79B
Opið hús:08. apríl kl 17:00-17:30
Álfhólsvegur 79B
200 Kópavogur
151.8 m2
Parhús
725
817 þ.kr./m2
124.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin