Fasteignaleitin

Að skoða fasteign

Yfirlit yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga

09 mars 2022
Mynd af Ársæll Óskarsson
Ársæll Óskarsson
Löggiltur Fasteignasali & Pípulagningameistari
Fasteignakaup eru í flestum tilfellum stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því skiptir máli að vera meðvituð um þau atriði sem helst þarf að hafa í huga við mat á kaupum. Þannig má einnig forðast að sitja uppi með óvæntan framkvæmdakostnað.
Samkvæmt fasteignakaupalögum er skoðunarskylda kaupenda rík og geta þeir til að mynda ekki borið fyrir sig galla sem hefði mátt sjá við almenna skoðun. Við afhendingu flyst ábyrgðin af seldri fasteign frá seljanda yfir til kaupanda.
Sem fasteignasali hef ég veitt því athygli að fólk tekur gjarnan einn hring um rýmið, skoðar skipulagið, útlit og stærð herbergja en gleymir oft að opna skápa, skrúfa frá krönum, sturta niður, prófa ljósrofa og svo framvegis.
Þegar við kaupum notaða fasteign er auðvitað ekki hægt að búast við því að hún sé í sambærilegu ástandi og þegar hún var byggð, því allt veðrast og slitnar með árunum. Ef engin saga eða reikningar eru til um viðhald eða endurbætur þá má gera ráð fyrir að allt sé upprunalegt nema annað sjáist greinilega við skoðun. En ætla má að fasteignaverð endurspegli ástand eignarinnar.
🔍
Að mörgu er að huga. Hér að neðan er yfirlit yfir tíu lykilatriði sem gott er að hafa á bak við eyrað við skoðun fasteigna. Listinn er ekki tæmandi, en ætti að gefa góða mynd af ástandi eignarinnar.

1. Þak

Erfitt getur reynst að sjá ástand þaks og í mörgum tilfellum er eingöngu hægt að sjá ysta lag þess. Það er yfirleitt klætt með þunnplötuklæðningu eða þakpappa og grófri möl sem lögð er ofan á einangrunina. Þak er gjarnan stór kostnaðarliður í viðhaldi húsa og því mikilvægt að gera sér einhverja mynd um ástand þess.
Er sjáanlegt ryð?
Er málning farin að flagna?
Er þakkantur farinn að fúna?
Eru einhver merki um að þakið sé að leka eða hafi lekið?
Eru þakrennur heillegar og á sínum stað?

2. Gluggar

Það fer eftir gerð glugga hvernig þeim er best viðhaldið. Timburglugga, sem eru algengastir í eldri húsum, þarf að mála með reglulegu millibili en ál og svokallaðir pvc gluggar eru viðhaldsminni.
Erfitt getur verið að átta sig á því hvort gluggar séu að leka en merki um það getur verið að málning sé að bólgna eða sprungur séu að myndast í veggjum við glugga. Einnig er mikilvægt að skoða glugga í nýbyggingum vel því þeir geta líka lekið.
Er opnanlega fagið þétt?
Er einfalt eða tvöfalt gler? Í nýjum húsum er gerð krafa um tvöfalt gler.
Er móða á milli glerja? Það er merki um að tími sé kominn á endurnýjun.
Er timbrið í gluggakörmumfarið að fúna?
Er vatnsbrettið að utan farið að fúna eða múr farinn að springa?
Eru barnalæsingar á opnanlegum fögum þar sem við á?

3. Útveggir

Útveggir eru í flestum tilfellum klæddir með járn- eða álklæðningu eða múraðir og málaðir.
Er málning farin að flagna?
Eru sprungur sjáanlegar eða eldri múrviðgerðir?
Eru svalir og svalahandrið heilleg?
Eru girðingar og handrið við húsið í góðu standi?

4. Dren og skólp

Til að skoða ástand frárennslislagna þarf sérstaka myndavél. Það er lítið mál að láta gera það og getur margborgað sig ef um eldri hús er að ræða. Endurnýjun á dreni og skólplögnum fylgir mikið rask og kostnaður.
Drenlagnir eiga að beina vatni frá útveggjum hússins. Eru þær til staðar?
Hefur skólplögn verið endurnýjuð?

5. Votrými - baðherbergi og þvottahús

Það er mikilvægt að rétt hafi verið gengið frá votrýmum.
Er opnanlegt fag eða útloftun í rýminu? Ef ekki, getur orðið mikil rakamyndun sem hætt er við að skemmi útfrá sér
Er holhljóð undir gólfflísum? Það getur verið merki um að vatn sé að komast undir flísar.
Er fúga á flísum og kíttun í kverkum heilleg? Sprungur í fúgu þarfnast lagfæringar, sérstaklega í flísalögðum sturtuklefum.
Er öryggisniðurfall í gólfi? Það er mikilvægt öryggisatriði og orðin krafa í nýbyggingum í dag.
Eru flísar heilar?

6. Neysluvatns- og miðstöðvarlagnir

Neyslu- og miðstöðvarlagnir eru í langflestum tilfellum ekki sýnilegar. Ef það er ekki mikið rennsli á vatninu í krönunum getur verið að rörin séu að renna sitt skeið, en lítið rennsli getur þó líka verið merki um að síur séu stíflaðar og það er smámál að leysa.
Er góður kraftur á neysluvatni?
Eru blöndunartæki hitastýrð? Það er mikið öryggisatriði, sérstaklega ef börn eru á heimilinu.
Virka allir ofnar og ofnkranar?

7. Rafmagn

Raflagnir eru yfirleitt ekki sýnilegar, en rofa, tengla og rafmagstöflu er hægt að skoða með auðveldum hætti. Það er algengt í eldri húsum að jarðtengingu og lekastraumsrofa vanti sem í dag er talið mikið öryggisatriði og ætti því að vera til staðar í öllum nýjum húsum. Lekastraumsrofinn er staðsettur í rafmagnstöflunni og á að slá út ef útleiðsla eða bilun á sér stað.
Eru tenglar í húsinu gamlir og ekki nothæfir nema með millistykkjum?
Eru tenglar og rofar vel staðsettir?
Eru loft og veggdósir vel staðsettar?
Virka rofar og tenglar?
Virkar dyrasími og dyrabjalla?

8. Innréttingar

Ástand innréttinga er einfalt að kanna með því að skoða framhliðar og opna skápa.
Eru framhliðar, höldur og lamir heilar?
Eru borðplötur í góðu ástandi?
Eru merki um leka í vaskaskáp? Þá er oft að finna fúkkalykt eða sjáanlegar rakaskemmdir.

9. Gólfefni

Gólfefni eru af mörgum gerðum, parket, flísar, dúkur o.fl.. Gæði á parketi eru misjöfn og nokkrar leiðir eru til að setja það niður, t.d. fljótandi harðparket eða niðurlímt gegnheilt viðarparket.
Er gólfefnið heillegt?
Eru gólflistar heilir?

10. Hurðir

Það reynir mikið á útidyrahurðir og því gott að skoða þær vel og sjá hvort þær séu þéttar og ekki fúnar. Hurðagöt eru orðin stærri en þau voru áður fyrr og þess vegna getur verið meira mál að skipta þeim út fyrir nýjar.
Er bílskúrshurð í lagi?
Eru hurðir heillegar?
Eru hurðir í eðlilegum stærðum?

Ársæll Óskarsson, lögg. fasteignasali og lögg. pípulagningameistari
ao@remax.is / s: 845 6699

Vinsælar eignir

Skoða eignina Aðalgata 30
Bílskúr
Skoða eignina Aðalgata 30
Aðalgata 30
420 Súðavík
125 m2
Sumarhús
312
200 þ.kr./m2
25.000.000 kr.
Skoða eignina Vesturgata 12B
Opið hús:27. maí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Vesturgata 12B
Vesturgata 12B
220 Hafnarfjörður
170.4 m2
Parhús
614
880 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Gnoðarvogur 82
Skoða eignina Gnoðarvogur 82
Gnoðarvogur 82
104 Reykjavík
98.4 m2
Fjölbýlishús
312
761 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Háagerði 79
3D Sýn
Skoða eignina Háagerði 79
Háagerði 79
108 Reykjavík
71.8 m2
Fjölbýlishús
312
695 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Skipasund 77
Bílskúr
Eignin er seld með fyrirvara
Skoða eignina Skipasund 77
Skipasund 77
104 Reykjavík
186.9 m2
Einbýlishús
635
856 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Myrkviður 1
Skoða eignina Myrkviður 1
Myrkviður 1
311 Borgarnes
98.4 m2
Einbýlishús
313
548 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 70
Skoða eignina Hjallabraut 70
Hjallabraut 70
220 Hafnarfjörður
316.4 m2
Raðhús
926
471 þ.kr./m2
148.870.000 kr.
Skoða eignina Austurströnd 6
Bílastæði
Skoða eignina Austurströnd 6
Austurströnd 6
170 Seltjarnarnes
105.7 m2
Fjölbýlishús
413
803 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Furugerði 25
Bílastæði
Skoða eignina Furugerði 25
Furugerði 25
108 Reykjavík
114.4 m2
Fjölbýlishús
413
865 þ.kr./m2
99.000.000 kr.
Skoða eignina Lindarhvammur 2
Skoða eignina Lindarhvammur 2
Lindarhvammur 2
220 Hafnarfjörður
110 m2
Fjölbýlishús
413
635 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin