Fasteignaleitin
Skráð 19. mars 2025

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
106 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
34.300.000 kr.
Fermetraverð
323.585 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2008991
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Þaksvalir
Upphitun
Kæling / Hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEG PENTHOUSE ÍBÚÐ MEÐ ÞAKSVÖLUM OG ÚTSÝNI* *GÖNGUFÆRI VIÐ GOLF, VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI* *FULLBÚIN EIGN MEÐ HÚSGÖGNUM OG STÆÐI Í BÍLAKJALLARA*

Virkilega vönduð og vel skipulögð 76 fm 3ja herbergja íbúð á efstu hæð með 30 fm þaksvölum í þessu vinsæla lyftuhúsnæði á Villamartin golfparadísarsvæðinu. Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Eldhús opið við stofu, bjart og fallegt rými, útgengi á svalir frá stofu og svefnherbergi. Lyftan nær upp á þaksvalir og niður í bílakjallara. Þrjár sameiginlegar sundlaugar, opin svæði, leikvöllur fyrir börn, tennisvöllur o.fl. Ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Stutt í verslanir, veitingastaði og í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina. Örstutt á frábæra golfvelli, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas og ótal fleiri. El Limonar, einn besti alþjóðlega einkaskólinn á svæðinu er örstutt frá.  
Sjá myndbandskynningu hér: https://youtu.be/P-2sAWgxa1g?si=eTbQSdcLKWQh3oH_

Allar upplýsinar veita
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is, sími 893 2495
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is,l sími 777 4277


Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu með forstofuskáp og dyrasíma með myndavél. Eldhús er með rúmgóðri innréttingu, ísskáp, uppþvottavél, örbylgjuofni og innfelldum vaski. Eldhús er opið við stofu og borðstofu sem gefur rýminu skemmtilegt flæði og birtu. Gólfsíðir gluggar í stofu sem opnast vel, og frá stofu er gengið út á svalir með eftirmiðdagssól. Aðstaða fyrir þvottavél er í skáp við hlið eldhúss. Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum. Stærra svefnherbergið er með sér baðherbergi með sturtu, gólfsíðum gluggum og útgengi út á svalir. Baðherbergi með glugga og sturtu. Lyftan gengur upp á þak þar sem íbúðinni fylgja 30 fm sér þaksvalir. Lyftan gengur einnig niður í bílakjallara þar sem íbúðinni fylgir rúmgott stæði. Loftkæling er innan íbúðar sem er einnig hægt að nota til hitunar.

Flottur sameiginlegur sundlaugargarður með þrennum sundlaugum, tennis velli og leikvelli fyrir börn. Mikið lagt upp úr fallegri sameign. 

Ca. 10 mínútna akstur niður á fallegar strendur La Zenia og Cabo Roig.

Verð 235.000 evrur + kostn. eða 34.300.000 ISK + kostn. (miðað við gengi 146)

Eignin afhendist strax og er fullbúin með húsgögnum. 
Við aðstoðum við fjármögnun fyrir allt að 70% af kaupverði eignar á góðum kjörum frá spænskum bönkum.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: nýleg eign, sameiginlegur sundlaugargarður,  útsýni, air con, bílastæði, þakverönd, golf, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin, Valentino Golf,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dunhagi 20
3D Sýn
Opið hús:25. maí kl 14:00-14:30
Skoða eignina Dunhagi 20
Dunhagi 20
107 Reykjavík
45.9 m2
Fjölbýlishús
211
1174 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Skeljatangi 29
Skoða eignina Skeljatangi 29
Skeljatangi 29
270 Mosfellsbær
84.9 m2
Fjölbýlishús
312
847 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Lofnarbrunnur 1
Rétt mynd.jpg
Skoða eignina Lofnarbrunnur 1
Lofnarbrunnur 1
113 Reykjavík
159.5 m2
Fjölbýlishús
423
720 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7d (116)
67 ára og eldri
Opið hús:25. maí kl 13:00-13:30
Eirhöfði7d_116.jpg
Eirhöfði 7d (116)
110 Reykjavík
138 m2
Fjölbýlishús
322
1007 þ.kr./m2
138.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin