Fasteignaleitin
Skráð 20. júlí 2026

Hnjúkamói 9, íbúð 0404

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
61.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
51.500.000 kr.
Fermetraverð
834.684 kr./m2
Byggt 2026
4. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25385141
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Fasteignasala Suðurlands kynnir:  Hnjúkamói 9, íbúð 0404, Þorlákshöfn.  Ný, 55,5m2 íbúð á 4.hæð, með 1 stóru svefnherbergi, í uppsteyptu fjölbýlishúsi auk 6,2m2 sér-geymslu og góðum svölum sem snúa í há-suður.  

** Hægt er að bóka einkaskoðun og fá allar nánari upplýsingar á fastsud@gmail.com og í síma 483 3424 ** 

Húsið er fyrsti áfangi svonefnds miðbæjarverkefnis sem verður allt hið glæsilegasta og er staðsett örstutt frá allri helstu þjónustu. 

Íbúðin verður tilbúin til afhendingar í  ágúst/september 2026.

Eignin skiptist svo:
*  1 stórt svefnherbergi með fataskápum. 
 Hurðir, úthliðar og sökklar fataskápa eru hvítar að lit. Stærðir skápa eru skv. teikningum.  
*  Rúmgott eldhús og stofu í opnu rými.   *  Utangengt er úr stofunni á svalir sem snúa í há-suður.
*  Eldhúsið er með fallegri innréttingu frá Arens (söluaðili, Ormsson).  Hurðir og forstykki eru hvít. Borðplötur eru plastlagðar í ljós gráum lit.   Eldhúsraftæki eru frá AEG. Ísskápur og uppþvottavél verða innbyggð.  Blöndunartæki eru frá Grohe.
*  Baðherbergi með fallegri innréttingu frá Arens.  Innrétting á baðherbergi afhendist með speglum, skápar eru í hvítum lit, borðplötur eru harðplast. Sturta er með sturtugleri.  Blöndunartæki á baði eru frá Grohe. Vegghengt salerni frá Laufen.  Sturta með hitastýrðum blöndunartækjum ásamt sturtustöng með haus og handúðara  
Flísalögn á baði mun ná upp í loft  á tvo veggi og gólf verður flísalagt.
* Þvottavélartengill er á baðherbergi.  
* Sér geymsla fylgir íbúðinni.


*  Allar hurðir eru hvítar og yfirfelldar. Hurðar innan íbúðar verða án þröskulda.
*  Öll gólf nema á baðherbergi eru lögð vönduðu Quick step harðparketi frá Harðviðarval.  
*  Allar innréttingar eru frá Arens, (söluaðili er Ormsson ehf.) og eru í stöðluðum stærðum, skv. innréttingateikningum.
*  Ljós (kúplar) eru á baðherbergi og í eldhúsi. Sjónvarps- og nettenglar í herbergi.
*  Dyrasímar skv. teikningum, myndavélasími verður í íbúðinni.

*  Stór sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu.  Gólf í sameiginlegri geymslu og sér-geymslum verður lakkað.
*  Gólf í stigahúsi eru teppalögð.
 
Lóð:
*  Lóðarfrágangur verður í megindráttum skv. teikningum landslagsarkitekta.
*  Snjóbræðsla á göngustígum samkvæmt teikningu.
*  Bílastæði verða malbikuð og  afmörkuð með máluðum línum.   
*  Gert verður ráð fyrir að hægt verði að setja hleðslustöðvar við húsið, lagnaleið fyrir hendi.

* Á myndum í auglýsingu má sjá hugmynd að miðbæjarskipulaginu.  Hnjúkamói 9 er hús merkt A2 á teikningu **

3-d myndir af íbúð í auglýsingu eru til glöggvunar á útliti innréttinga en ekki skipulagi.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/ 



Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Super 1 pizza (facebook:  super 1 pizza)
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is og á www.hamingjuhofn.is
  
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasala Suðurlands ehf.
www.eignin.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stefnisvogur 40
Skoða eignina Stefnisvogur 40
Stefnisvogur 40
104 Reykjavík
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
1120 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Kistuholt 2
Á einni hæð
Skoða eignina Kistuholt 2
Kistuholt 2
806 Selfoss
136.2 m2
Parhús
413
447 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Ísleifsbúð 17
815 Þorlákshöfn
153.9 m2
Raðhús
413
528 þ.kr./m2
81.200.000 kr.
Skoða eignina Hólsbraut 10
Bílskúr
Skoða eignina Hólsbraut 10
Hólsbraut 10
805 Selfoss
406 m2
Parhús
5
172 þ.kr./m2
70.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin