NÝTT Í SÖLU - OPIÐ HÚS.
HVERAFOLD 30. FALLEGT, VELSKIPULAGT ENDARAÐHÚS Á EINNI HÆÐ INNST Í LOKAÐRI GÖTU Á FRÁBÆRUM STAÐ Í GRAFARVOGI.
Opið hús Sunnudaginn 28.júní 2026, kl. 13,00 - 14,00 Ingólfur Gissurarson lg.fs. sýnir S:896-5222 ingolfur@valholl.is
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari, síðan 1989, sími:896-5222, kynna: Nýkomið í einkasölu eitt af þessum eftirsóttu raðhúsum á einni hæð við Hverafoldina í Grafarvogi. Einstaklega huggulegt og velskipulagt 198,9 fm endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Frábær staðsetning innst í lokaðri götu á rólegum, eftirsóttum stað í Grafarvogi. Örstutt í skóla, leikskóla, verslun, íþróttir, sundlaugina og fl. 4 svefnherbergi (tvö reyndar sameinuð í eitt í dag). Góðar stofur með arin, afgirtur gróðursæll garður með steyptri verönd og stéttum.
SKIPULAG:
Húsið er mikkð til í upprunalegu standi að innan en heillegt. Innréttingar, skápar og innihurðir eru upprunalegar, sérsmíðaðar af trésmiðjunni Borg (Sauðárkróki) á sínum tíma.
Forstofa með skápum. Rúmgott forstofuherbergi með skápum innaf forstofu og einnig gestasnyrting með vaskinnréttingu. Hol. Búr innaf holi með litlum glugga og hillum. Eldhús með góðum borðkrók, velskipulögð innrétting teiknuð af Öglu Mörtu innanhúsarkitekt, innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél (AEG) fylgja. Miele eldri tæki. Sjónvarpshol eða borðstofa við hlið eldhúsins og svo eru tvö þrep niður í rúmgóða stofu sem er með arin. Útgengt útá steypta suðvestur verönd, mjög skjólgóða og fallegan garð. Lítil pútt-flöt fyrir golf í garðinum. Afgirtur garður með fallegum fjölbreyttum gróðri og stórum trjám. Tveimur þrepum neðar en stofan er svo garðstofa eða borðstofa. Svefnálma: 3 svefnherbergi, tvö þeirra eru nú sameinuð í eitt stórt, en auðvelt að breyta aftur. Skápar í hjónaherberginu og þar er útgengt útá veröndina / garðinn. Baðherbergi flísalagt með góðri sturtu, baðkari, skápum og innréttingu með tveimur vöskum og vegghengdu salerni. Bjartur þakgluggi á baði. Þvottaherbergi með hillum. Innbyggður góður bílskúr með hillum, geymslulofti, vatni, rafmagni og gönguhurð á bílskúrshurðinni. Tengill fyrir rafbílastöð. á Svefnherbergisgangi er niðurdraganlegur stigi uppá rúmgott geymsluloft. Ljósleiðari. Húsið er skuldlaust og gæti losnað fljótlega.
Gólfefni= Flísar á forstofu, gestasnyrtingu, garðstofu og baðherberginu. Málað gólf í þvottahúsi. Gegnheilt ljóst eikarparket á öðrum gólfum.
ANNAÐ: Eftirfarandi upplýsingar eru frá seljendum= Nýlegt þakjárn og pappi (2021), Efni í loftaklæðningu á baði (sem er farin að láta á sjá) er til uppi á háalofti, Frystir í eldhúsi er lélegur, innfledir hátalarar í eldhúsi og utanáliggjandi í lofti í stofu fylgja húsinu ásamt gerfihnattadiski á þaki. Sjá annars upplýsingablað seljenda um ástand eignar sem liggur fyfir hjá sölumanni.
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari S: 896-5222 ingolfur@valholl.is
Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 37 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, hringið þegar ykkur hentar í síma 896-5222.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.