Viltu kynnir Fallega og vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð á 3 hæð auk bílskúrs í nýlegu húsi við Maríugötu 15 í Urriðaholti. Eignin sem er skráð samkvæmt þjóðskrá 165,9 fm skiptist í 122,7 fm íbúðarrými, 20 fm geymslu og 23,2 fm bílskúr í sérstæðri fjögurra bílskúra lengju. Íbúðarrýmið samanstendur af anddyri, herbergisgangi með þremur rúmgóðum herbergjum, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi með salerni. Úr íbúðinni er fallegt útsýni yfir Heiðmörkina og golfvöllinn og stutt er að fara í fjölbreyttar útivistarleiðir.
Stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100 elisabet@viltu.is
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939 karolina@viltu.is
Nánari lýsing:
Anddyri: Parketlagt með skápum.
Stofa/borðstofa: Parketlögð með útgengt á svalir og útsýni yfir Heiðmörkina. Opið er á milli stofu/borðstofu og eldhússins.
Eldhús: Í alrýminu er parketlagt eldhús með fallegri dökkbrúnni innréttingu og eyju með dökkgrárri borðplötu.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru 3, rúmgóð með parketi á gólfum og skápum.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfum og að hluta til á veggjum, með snyrtilegri hvítri innréttingu með dökkri borðplötu, flísalagðri sturtu með gleri, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Þvottahús: Flísalagt með innréttingu, vaski, salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr: er með epoxy gólfi, sjálfvikrum hurðpaopnara, heitu og köldu vatni og búið er að gera milliloft yfir hluta af honum.
Íbúðin er með fallegu og vönduðu parketi frá Ebson
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
20/06/2022 | 6.710.000 kr. | 91.500.000 kr. | 165.9 m2 | 551.537 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
210 | 118.5 | 129,9 | ||
210 | 113.3 | 117,9 | ||
210 | 119 | 114,9 | ||
210 | 116 | 119,9 | ||
210 | 127.8 | 129,8 |