Fasteignasalan TORG og Helgi Jónsson lgfs 780-2700 kynna : Mjög vel staðsett einbýlishús með bílskúr, innst í botnlanga á rólegum stað með fallegu útsýni. Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, hol, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr. Húsið er 140 fm timburhús, byggt árið 1979, og hefur verið klætt að utan með viðhaldslítilli klæðningu. Bílskúrinn er 36,9 fm, steyptur og byggður árið 1986. Eignin stendur á 900 fm lóð með fallegum trjágróðri. Húsið getur verið afhent með skömmum fyrirvara. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteigansali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is
Gengið er inn í forstofu með fatahengi og flísalögðu gólfi. Úr forstofu er gestasalerni með korki á gólfi. Eldhúsið er rúmgott með upprunalegri innréttingu, notalegum borðkrók við glugga og harðparketi á gólfi. Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með parketi á gólfi og útgengi út á verönd. Stórir suðurgluggar gefa mikla birtu og bjóða upp á stórkostlegt útsýni yfir jöklana. Svefnherbergisálman samanstendur af fjórum herbergjum og baðherbergi. Gangur er rúmgóður með dúk á gólfi og veggfóðri á veggjum. Hjónaherbergi er með góðum skápum. Annað mjög rúmgott herbergi með parketi var upphaflega tvö herbergi, og því er möguleiki á að skipta því aftur upp. Tvær dyr eru inn í herbergið. Tvö önnur góð herbergi eru með dúk á gólfi. Baðherbergið er með baðkari og sturtu, innréttingu og handklæðaofni, flísar eru á gólfi og veggjum. Bílskúrinn er með rafmagni og innst í honum er góð geymsla.
Endurbætur síðustu ára: ● 2017: Húsið klætt með viðhaldsfrírri klæðningu ● 2021: Nýtt heitavatnsinntak ● 2021: Skipt um ofna og allar pípulagnir endurnýjaðar í húsinu ● 2024: Þak málað
Stór og skjólgóður garður umlykur húsið, sem snýr að mestu til suðurs. Garðurinn hefur verið vel hirtur.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteigansali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.