Fasteignasalan TORG kynnir: Eign í sérflokki á rólegum stað við sjávarsíðuna á Kársnesinu. Um er að ræða mjög vandað parhús með möguleika á auka íbúðaraðstöðu samtals skráð skv fmr 236,7fm. Gólfsíðir gluggar, sérsmíðaðar innréttingar í eldhúsi, baðherbergjum og svefnherbergjum, marmari á borðum í eldhúsi, fallegt gólfefni, góð lofthæð og gróinn garður með heitum potti er m.a það sem einkennir þetta glæsilega hús ásamt fallegu útsýni. Sjón er sögu ríkari. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.isNeðri hæð:Forstofa, gangur, hjónasvíta með fataherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi með stórri sturtu, þvottahús, geymslu og „bílskúr“. Hæðinni var áður skipt upp þannig að úr varð 2ja herb auka íbúðaraðstaða með sérinngangi. Einfalt er að breyta því aftur í sér einingu. Rúmgott þvottahús/geymsla með innréttingu/eldhúsinnréttingu. Innan við forstofu er gengið í rúmgóða geymslu og “bílskúr“.
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með miklum fataskápum sem ná uppí loft.
Svefnherbergi: Innaf forstofu eru tvö rúmgóð parketlögð svefnherbergi með sérsmíðuðum fataskápum.
Hjónasvíta: Innst á ganginum er rúmgóð hjónasvíta og þar innaf er fataherbergi, bæði rýmin eru parketlögð. Útgengt er framan við hjónaherbergi og baðherbergi út á pall með heitum potti og skjólgóðu rými.
Baðherbergi: Viðhlið hjónasvítu er rúmgott baðherbergi með stórri sturtu sem er lögð með marmara.
Þvottahús/geymsla: Í þvottahúsi er góð innrétting (eldhúsinnrétting sem var hluti af íbúðaraðstöðu á neðri hæð).
Fataherbergi/geymsla: Í þessu rými, sem er framan við rúmgóða geymslu/„bílskúr“ er gott pláss fyrir fataskápa og/eða geymslu. Hentar vel sem innri forstofa eða svokallað blautrými.
Efri hæð: Gengið er upp bjartan parketlagðan stiga uppá efri hæð hússins.
Stofur: stofan er rúmgóð og rúmar einnig sjónvarpsstofu. Stórir gluggar með fallegu útsýni yfir Fossvoginn, Öskjuhlíðina og í vestur út á Löngusker, útgengt er út á svalir frá stofunni. Gegnheilt parket er á gólfum að hluta og flotað að hluta, aðskilið með koparlistum. Gert er ráð fyrir arin á vesturvegg í sjónvarpsstofu, lokað reykrör er uppúr þaki.
Borðstofa: Við hlið eldhúss er rúmgóð borðstofa sem mögulegt er að loka og nota sem herbergi. Útgengt er út í garð og á verönd úr harðvið frá borðstofu/eldhúsi.
Eldhús: eldhúsið er glæsilegt með fallegri sérsmíðaðri innréttingu úr reyktri eik, hamrað gler er að hluta til í efri skápum sem setur skemmtilegan svip á innréttinguna. Stór marmaraklædd eyja er í eldhúsinu með gashelluborði, ísskápur er innbyggður og einnig eru stórar ísskápsskúffur í innréttingunni. Ofninn er í vinnuhæð og uppþvottavél innbyggð.
Herbergi: herbergið er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi. Á upphaflegri teikningu er gert ráð fyrir að þetta rými sé sjónvarpsstofa, þá væru skápar í þessu herbergi færðir í hjónasvítu. Þessir skápar gætu nýttst sem viðbót í fataherbergi á neðri hæð.
Baðherbergi: glæsilegt baðherbergi er flísalagt að hluta með fallegri innréttingu, upphengdu salerni og góðri sturtu með innbyggðum blöndunartækjum.
Góð loftræsting er í húsinu með stórum blásara á þaki sem er hraðastilltur í baðherbergjum og þvottahúsi á neðri hæð. Rými undir stiga er nýtt sem geymsla.
Garður og aðkoma: aðkoman er falleg, hellulagt bílaplan, steyptir veggir með lýsingu, verönd úr harðvið og heitur pottur. Í garðinum er svokallað úthagatorf í stað hefðbundins grass, krefst mjög lítillar umhirðu. Fallegt reynitré er í garðinum og hraunhleðsla á móti húsinu.
Niðurlag: þetta er glæsileg eign á eftirsóttum stað í Kársnesi Kópavogs. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.isSækja söluyfirlit HÉR