Fasteignaleitin
Opið hús:19. júní kl 17:00-17:30
Skráð 13. júní 2025
Deila eign
Deila

Klettás 17

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
188.4 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
795.648 kr./m2
Fasteignamat
133.900.000 kr.
Brunabótamat
91.500.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2002
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2257225
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað um vandamál
Raflagnir
Ekki vitað um vandamál
Frárennslislagnir
Ekki vitað um vandamál
Gluggar / Gler
Ekki vitað um vandamál
Þak
Ekki vitað um vandamál
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Elka lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir Klettás 17 – Rúmgott og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum með bílskúr og afgirtum garði
Vel staðsett raðhús í rólegri götu við Klettás í Garðabæ. Eignin er á tveimur hæðum, vel skipulögð með aukna lofthæð á efri hæð, björt rými og fallegt útsýni.  
Eignin er skráð skv. FMR samtals 188,4 m² og skiptist í fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, opið stofu/borðstofurými, eldhús, þvottahús, geymslu og bílskúr en í bílskúr er möguleiki á fimmta herberginu.
Lóðin er afgirt og bílaplan hellulagt með hitalögn.  Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Nánari lýsing:
Gengið er inní forstofu með flísum og stórum fataskáp.  Úr forstofu er gengið inní bílskúrinn en honum er skipt í tvennt með möguleika á að bæta við auka herbergi.
Miðrými/hol með parketi og geymslu undir stiga.
Baðherbergi var endurnýjað 2021, er með sturtu, góðri innréttingu, upphengdu salerni og flísum. 
Tvö rúmgóð barnaherbergi, annað með útgengi út í bakgarð.
Þvottahús með góðum innréttingum og flísum á gólfi.  Gluggi til austurs.
Parketlagður stigi milli hæða - Efri hæðin er björt og rúmgóð 
Eldhús
með góðri U-laga innréttingu, ofni í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél
Rúmgott stofu- og borðstofurými með fallegu útsýni og útgengi á stórar svalir í suðvestur.
Barnaherbergi og hjónaherbergi, bæði með parketi og fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, sturtuklefa, handklæðaofni og upphengdu salerni
Bílskúrinn er 38 m² og hefur að hluta verið nýttur sem sjónvarps- og tómstundaherbergi.
Afgirt lóð sem snýr í austur með hellum og grasflöt.  Hellulagt bílaplan og stétt með hitalögn.
Húsið er í góðu ástandi, var málað að utan 2020, þak yfirfarið og málað 2022, meginhluti glugga málaðir 2024. 
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/10/201757.750.000 kr.74.000.000 kr.188.4 m2392.781 kr.
02/07/201551.350.000 kr.57.000.000 kr.188.4 m2302.547 kr.
18/09/201449.700.000 kr.59.900.000 kr.188.4 m2317.940 kr.Nei
01/07/201043.000.000 kr.45.900.000 kr.188.4 m2243.630 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2002
38 m2
Fasteignanúmer
2257225
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.200.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb204
Bílastæði
Vetrarbraut 2-4 íb204
210 Garðabær
144.2 m2
Fjölbýlishús
413
1005 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 - íbúð 204
Bílastæði
Vetrarbraut 2 - íbúð 204
210 Garðabær
144.2 m2
Fjölbýlishús
413
1005 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb104
Bílastæði
Vetrarbraut 2-4 íb104
210 Garðabær
144.3 m2
Fjölbýlishús
413
956 þ.kr./m2
137.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 (304)
Bílskúr
Bílastæði
Opið hús:16. júní kl 16:00-18:00
Vetrarbraut 2 (304)
210 Garðabær
160.3 m2
Fjölbýlishús
423
904 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin