Borgir fasteignasala kynnir eignina Laugavegur 76, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 200-5409 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Laugavegur 76 er skráð sem hér segir verslunarhúsnæði. Birt stærð 108.3 fm. sem skiptist í 89,4 fm verslunarhúsnæði og litla geymslu 18,9 fm sem er inntaksrými og aðrir eigendur í húsinu hafa umgengnisrétt af sbr. ákvæði í eignarskiptayfirlýsingu.
Gott aðgengi er að húsnæðinu en gengið er beint inn í það frá göngustíg.
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is eða
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123,tölvupóstur bjarklind@borgir.isÍ dag er starfrækt snyrti/nuddstofa og eru því tvö herbergi án glugga og ofns en vaskur er í báðum herbergjunum.
Stórir og góðir gluggar eru Laugavegsmegin.
Gerngið er upp 3 tröppur en þar er eitt lítið rými með vask/vaksaskáp og lítið salerni.
Nýlegt plastparket er á gólfinu.
Geymsla er fyrir aftan húsnæðið og er gengið þar inn í gegnum stigaganginn. Í geymslunni er inntaksrými þar sem aðrir eigendur að húsinu hafa einnig aðgang. Tengi er fyrir þvottavél.
Húsið er þrjár hæðir og ris (matshluti 1) Austurhluti þess (eignir 01.01,02.01 og 03.01) er byggður úr steypu og timbri árið 1910 og yfir undirgöngum að Laugavegi 78 árið 1930.
Loft yfir 1.hæð er úr timbri. Vesturhlutinn (stigahúsið og eignir 01.02,02.01 og 03.01) er byggður úr steypu árið 1926. Þakhæðin er byggð úr timbri árið 1950 og endurbyggt eftir bruna 1983.
Umhverfi:
Verslunarhúsnæðið er í vel staðsettu og reisulegu húsnæði eins og áður segir á Laugavegi 76 þar sem áður var þekkt fataverslun. Gengið er beint inn af göngustíg.