Fasteignaleitin
Skráð 7. maí 2026

Engihjalli 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
78.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
58.700.000 kr.
Fermetraverð
748.724 kr./m2
Fasteignamat
54.250.000 kr.
Brunabótamat
42.750.000 kr.
Mynd af Hrafnkell Pálmarsson
Hrafnkell Pálmarsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2059898
Landnúmer
114220
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
07
Hæðir í húsi
8
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
1
Upphitun
Hitaveita - sameiginleg
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á aðalfundi 2025 var einnig rætt um viðgerðir vegna leka og fram kom að nauðsynlegt þykir að láta gera ástandsmat á heildar ytra byrði blokkarinnar. Stjórn var falið að afla tilboða í ástandmat og kynna á húsfundi. Sjá nánar í aðalfundargerð 12.05.25.
Á aðalfundi 2026 voru kynnt tilboð í viðgerð á þaki. Samþykkt var tilboð og ákveðið var að innheimta íbúa ásamt því að nýta inneign úr hússjóð. Innheimt verður frá júlí til og með október 2026. Einnig var samþykkt að veita stjórn heimild til lagfæringa á anddyri sem verður greitt alfarið úr hússjóð. Stjórn var falið að fylgja eftir atriðum er snúa að lélegum vatnsþrýsting, leka á toppstykkjum glugga B megin, sækja tilboð í öryggismyndavélar ásamt öðrum verkum sem snúa að sameign. Sjá nánar aðalfundargerð 07.05.2026
Gallar
Leki hefur verið við toppstykki í eldhúsglugga, í lofti við stofuglugga og í lofti við glugga í barnaherbergi. Húsélagið hefur verið látið vita af málinu og er þetta talið koma út frá gluggum á hæðinni fyrir ofan sem væntanlega þarf að skipta út. Húsfélagið er með þetta í ferli, sjá aðalfundargerð 07.05.2026.
Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 7.hæð í lyftuhúsi við Engihjalla 3 í Kópavogi. Góð staðsetning með glæsilegu útsýni miðsvæðis á höfðuborgarsvæðinu nálægt allri helstu þjónustu.

** 2 svefnherbergi
** Gott útsýni
** Frábær fyrstu kaup


Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. HMS er 78,4m2.

Eignin skiptist í anddyri, stofu/borðstofu, eldhús, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús fyrir hæðina og í kjallara er sérgeymsla sem ekki er í fermetratölu.

Nánari lýsing:
Anddyri er með góðum fataskápum með filmuðum skáphurðum. Parket á gólfi.
Eldhús er með hvítri innréttingu og ljósri borðplötu, bakaraofni, helluborði og stæði fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð með útgengi á rúmgóðar svalir með glæsilegu útsýni. Hljóðdempandi plötur á hluta veggja. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott með góðum fataskápum og útgengi á svalirnar. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi.
Baðherbergi er með innréttingu sem er filmuð að hluta, handlaug, salerni og "walk-in" sturtu með nýlegum blöndunartækjum og sturtuhaus. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Sérgeymsla er í sameign og er hún ekki inni í fermetratölu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/07/202132.250.000 kr.43.500.000 kr.78.4 m2554.846 kr.
13/07/201827.700.000 kr.31.000.000 kr.78.4 m2395.408 kr.
16/11/201520.500.000 kr.21.500.000 kr.78.4 m2274.234 kr.
18/10/201115.650.000 kr.15.900.000 kr.78.4 m2202.806 kr.
16/02/200816.445.000 kr.17.400.000 kr.78.4 m2221.938 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dunhagi 20
3D Sýn
Opið hús:25. maí kl 14:00-14:30
Skoða eignina Dunhagi 20
Dunhagi 20
107 Reykjavík
45.9 m2
Fjölbýlishús
211
1174 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Bræðratunga 6
Bílskúr
Opið hús:28. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Bræðratunga 6
Bræðratunga 6
200 Kópavogur
161.4 m2
Raðhús
523
728 þ.kr./m2
117.500.000 kr.
Skoða eignina Skeljatangi 29
Skoða eignina Skeljatangi 29
Skeljatangi 29
270 Mosfellsbær
84.9 m2
Fjölbýlishús
312
847 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Lofnarbrunnur 1
Rétt mynd.jpg
Skoða eignina Lofnarbrunnur 1
Lofnarbrunnur 1
113 Reykjavík
159.5 m2
Fjölbýlishús
423
720 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin