Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með fataskáp. Tvö svefnherbergi eru, annað með kojum og hitt með tvíbreiðu rúmi. Baðherbergið er með wc,vaski, sturtuklefa og dúk á gólfi. Alrýmið er opið með eldhús(borðstofu/stofu. Eldhúsið er með innréttingu á einum vegg, efri og neðri skápar, einfaldur ísskápur og frystir, uppþvottavél, eldavél með hellum og vifta. Í borðstofu er gott matarborð fyrir 6 perónur og stofan inniheldur hornsófa, stofuborði , hægindastólum, skenk með sjónvarpi og kamína er til viðbótarkyndingar. Lítið svefn/geymsluloft er yfir hluta hússins.
Úti er verönd á þrjá vegu við húsið, austur/suður/vestur, með fallegu útsýni út á Skorradalsvatn. Á austurverönd er óeinangraður geymsluskúr sem inniheldur ýmislegt, s.s. búnað til veiða í vatninu, rafmagnsmótor með bát og annað smálegt. Einnig fylgir með rafmagns saunaofn sem á eftir að útfæra betur í alvöru sauna. Heitur pottur á verönd er ónýtur skv. eiganda og verður ekki reynt að gera við hann fyrir sölu.
Húsið er komið að ýmsu viðhaldi, kominn tími að bera á við og sólpalla en virðist þak vera í þokkalegu lagi ennþá. Mögulegum kaupendum er þó bent á að skoða húsið með komandi viðhald í huga, húsið selst eins og það er kynnt.
Lóðin er mjög gróin, stutt er að fara göngustíg niður a vatninu og liggur þar gamall bátur sem fylgir með húsinu í kaupunum, kaupendur skulu kynna sér ástand hans.
Lítill kofi er á lóðinni innan um tréin fyrir börn og fylgir allt innbú (utan perónulegra muna).
Lóðin er 2.457 fm að stærð, gildandi lóðarleigusamningur til 2029 en kaupandi mun fá nýjan samning við landeiganda til 20 ára samhliða kaupunum.
Skorradalur er vinsælt útivistarsvæði þar sem stutt er í fjölbreytta afþreyingu, gönguleiðir, veiði og aðra náttúruupplifun. Eignin hentar jafnt sem sumarhús fyrir fjölskylduna eða sem friðsælt athvarf frá ys og þys daglegs lífs, árið um kring.
Húsið er gamalt, margt upprunalegt og skal mögulegur kaupandi kynna sér ástand þess skv. skoðunar- og aðgæsluskyldu í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Heitur pottur er ónýtur skv. seljanda.
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:
Vel skipulagðan eldri bústað á gróinni lóð með fallegu útsýni og stutt frá vatnsbakka Skorradalsvatns.
Eignin stendur á gróinni og skjólsælli sumarhúsalóð í Vatnsendahlíð, móti suðri, með fallegu útsýni yfir vatnið og fjallahringinn sem umlykur dalinn.
Sumarhúsið var byggt árið 1992, af núverandi eigendum, byggður úr timbri, á steyptum stólpum og er birt stærð 63,1 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með fataskáp. Tvö svefnherbergi eru, annað með kojum og hitt með tvíbreiðu rúmi. Baðherbergið er með wc,vaski, sturtuklefa og dúk á gólfi. Alrýmið er opið með eldhús(borðstofu/stofu. Eldhúsið er með innréttingu á einum vegg, efri og neðri skápar, einfaldur ísskápur og frystir, uppþvottavél, eldavél með hellum og vifta. Í borðstofu er gott matarborð fyrir 6 perónur og stofan inniheldur hornsófa, stofuborði , hægindastólum, skenk með sjónvarpi og kamína er til viðbótarkyndingar. Lítið svefn/geymsluloft er yfir hluta hússins.
Úti er verönd á þrjá vegu við húsið, austur/suður/vestur, með fallegu útsýni út á Skorradalsvatn. Á austurverönd er óeinangraður geymsluskúr sem inniheldur ýmislegt, s.s. búnað til veiða í vatninu, rafmagnsmótor með bát og annað smálegt. Einnig fylgir með rafmagns saunaofn sem á eftir að útfæra betur í alvöru sauna. Heitur pottur á verönd er ónýtur skv. eiganda og verður ekki reynt að gera við hann fyrir sölu.
Húsið er komið að ýmsu viðhaldi, kominn tími að bera á við og sólpalla en virðist þak vera í þokkalegu lagi ennþá. Mögulegum kaupendum er þó bent á að skoða húsið með komandi viðhald í huga, húsið selst eins og það er kynnt.
Lóðin er mjög gróin, stutt er að fara göngustíg niður a vatninu og liggur þar gamall bátur sem fylgir með húsinu í kaupunum, kaupendur skulu kynna sér ástand hans.
Lítill kofi er á lóðinni innan um tréin fyrir börn og fylgir allt innbú (utan perónulegra muna).
Lóðin er 2.457 fm að stærð, gildandi lóðarleigusamningur til 2029 en kaupandi mun fá nýjan samning við landeiganda til 20 ára samhliða kaupunum.
Skorradalur er vinsælt útivistarsvæði þar sem stutt er í fjölbreytta afþreyingu, gönguleiðir, veiði og aðra náttúruupplifun. Eignin hentar jafnt sem sumarhús fyrir fjölskylduna eða sem friðsælt athvarf frá ys og þys daglegs lífs, árið um kring.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.