Opið hús:24. feb. kl 16:15-17:00
Skráð 19. feb. 2026

Borgarsíða 25

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-603
165.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
115.000.000 kr.
Fermetraverð
694.444 kr./m2
Fasteignamat
95.800.000 kr.
Brunabótamat
83.200.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Byggt 1993
Garður
Bílskúr
Útsýni
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2145378
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Gluggar eru upprunalegir. Gler hefur verið endurnýjað að hluta
Þak
Upprunalegt - hefur lekið kringum kvisti. Þarfnast skoðunar.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Timbursvalir til vesturs
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita - affall af ofnum í stofu rennur í gegnum gólfið að hluta
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Sprunga er í sturtugleri.
Eignin er ekki að fullu í samræmi við teikningar.
Ummerki er um leka/smit í báðum kvistum á efri hæð. Eigendur fengu smið til að opna veggi í kvisti til vesturs á efri og vesturvegg í stofu árið 2023 og skipti hann um allt skemmt efni. Þeim er sagt að möguleg ástæði fyrir þessum leka sé að naglar í þakjárni séu í lágbárunni.
Kvöð / kvaðir
sjá nánar í lóðarleigusamningi
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Borgarsíða 25 - Skemmtilegt 5 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum og með sambyggðum bílskúr á vinsælum stað í Síðuhverfi - stærð 165,6 m²


Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Neðri hæð 107,2 m²:
Forstofa, hol, eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými, snyrting, bakinngangur og bílskúr.
Efri hæð 58,4 m²: Hol, baðherbergi og fjögur svefnherbergi.

Forstofa er með flísum á gólfi og hvítum fataskápum. Innfelld lýsing er í lofti. 
Eldhús, vönduð hvít sprautulökkuð innrétting með mjög góðu skúffu- og bekkjarplássi. Borðplata er tvískipti og er granít á hluta. 
Borðstofa, stofa og eldhús eru í opnu björtu rými þar sem harðparket er á gólfum, innfelld lýsing í loftum og gluggar til þriggja átta. Úr stofu er gengið út til vesturs á timbur verönd með heitum potti. 
Af holi á neðri hæðinni liggur vandaður járn stigi með viðar þrepum upp á efri hæðina.
Svefnherbergin eru fjögur, öll á efri hæðinni og öll með ljósu plast parketi á gólfi. Fataskápar eru í þremur herbergjum. Úr fjórða herberginu er gengið út á timbur svalir til vesturs. 
Baðherbergi er rúmgott og flísalagt í hólf og gólf. Hvít sprautulökkuð innrétting, wc, hornbaðkar, sturta og opnanlegur gluggi. 
Snyrting er á neðri hæðinni með flísum á gólfi, dökkri innréttingu með handlaug, wc og opnanlegum glugga. 
Bakinngangur er í dag Sauna rými og með sturtuklefa. Gengið er í gegnum rýmið þegar farið er inn í bílskúr. 
Bílskúr er skráður 33,2 m² að stærð og þar eru flísar á gólfum, rafdrifin innkeyrsluhurð og sér gönguhurð út á baklóð. Búið er að setja upp snyrtilega hvíta þvottahúsinnréttingu. Geymsluloft er yfir hluta. 
Bílaplan var hellulagt árið 2021 og lagðar hitalagnir í ca tvöfalt stæði og í stétt að forstofuhurð. Engar hitalagnir eru nyrst á stæðinu né í plani meðfram bílskúr.  

Annað
- Nýtt harðparket var lagt á neðri hæðina árið 2024.
- Innrétting á baðherbergi var sprautulökkuð árið 2024, sett ný borðplata, handlaug og blöndunartæki. 
- Búið er að endurnýja hluta af gleri.
- Kringum húsið er falleg og vel hönnuð lóð. Fyrir framan er beð með trjágróðri og sjávarmöl og á baklóðinni er rúmgóð verönd, bæði timbur og hellur og heitur pottur. Hellulagður stígur er hringinn í kringum húsið. 
- Tveir geymsluskúrar eru á lóðinni, annar nýlegur en hinn er eldri og minni.  
- Lóðin er skráð 1.017,9 m² að stærð.
- Eignin er í einkasölu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/09/200927.700.000 kr.28.500.000 kr.165.6 m2172.101 kr.
16/08/200622.800.000 kr.30.750.000 kr.165.6 m2185.688 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignanúmer
2145378
Byggingarefni
Timbur
Fasteignamat samtals
0 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lautarmói 1 íbúð 402
Bílastæði
Lautarmói 1 íbúð 402
603 Akureyri
116.7 m2
Fjölbýlishús
312
907 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Skoða eignina Lautarmói 1 íbúð 502
Bílastæði
Lautarmói 1 íbúð 502
603 Akureyri
120.5 m2
Fjölbýlishús
312
912 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Lautarmói 1 402
Bílastæði
Skoða eignina Lautarmói 1 402
Lautarmói 1 402
603 Akureyri
116.7 m2
Fjölbýlishús
312
907 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Skoða eignina Lautarmói 1 501
Bílastæði
Skoða eignina Lautarmói 1 501
Lautarmói 1 501
603 Akureyri
117.5 m2
Fjölbýlishús
312
935 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin