STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Opna og rúmgóða 102,4 fm 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í snyrtilegu fjölbýli. Húsið er steypt 7. hæða fjölbýlishús með lyftu ásamt stæði í bílageymslu og tveimur geymslum í sameign og er önnur geymslan ekki í birtri stærð eignar.
Húsið hefur fengið almennt gott viðhald. Nýlega var lyfta yfirfarin og gert við eftir þörfum og stjórnbúnaður endurnýjaður. Blásari í loftræstikerfi endurnýjaður 2026. Sameign í kjallara máluð fyrir nokkrum árum.
Öll helsta þjónusta, verslun og samgöngur eru í grenndinni en einnig er stutt ganga í Laugardalinn eða meðfram sjónum og í miðborgina.
Íbúðin er 97,5 fm merkt (02-0202) og geymslan er 4,9 fm merkt (02-0011) samtals er eignin skráð 102,4 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isForstofa er með flísum á gólfi og skápum.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á lokaðar suðursvalir. Fyrir framan svalahurð eru flísar á gólfi.
Eldhús er með flísum á gólfi, viðarinnrétting og flísar á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru tvö og eru með parketi á gólfum og skápum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, upphengt wc og skápar undir vask.
Þvottahús er innan íbúðar og er með flísum á gólfi ásamt vinnuborði í vask.
Geymsla innan íbúðar með parketi á gólfi, svo eru tvær geymslur í sameign sem tilheyra íbúðinni.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Bílageymsla merkt stæði í bílageymslu.