Fasteignaleitin
Skráð 27. feb. 2026

Fífutún 8A ÍB 101

Nýbygging • FjölbýlishúsAusturland/Egilsstaðir-700
62.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
45.800.000 kr.
Fermetraverð
732.800 kr./m2
Fasteignamat
39.700.000 kr.
Mynd af Elín Káradóttir
Elín Káradóttir
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2524666
Landnúmer
234908
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Steypt verönd
Lóð
12,59
Upphitun
Hitaveita ofnar
Inngangur
Sérinngangur
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu FÍFUTÚN 8A ÍBÚÐ 101, 700 Egilsstöðum. Ný tveggja herbergja íbúð á neðri hæð í nýju fjölbýlishúsi. 
Sér inngangur er í íbúðina. ÍBÚÐ 101 Á NEÐRI HÆÐ. Íbúðin er 62,5 m², þar af geymsla 2,1 m² 
samkvæmt skráningu HMS.

ÍBÚÐIN VERÐUR TILBÚIN TIL AFHENDINGAR 30. júní 2026.

Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, eitt svefnherbergi og baðherbergi. 
Í sameign: Sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla. 

Nánari lýsing: 
Andyri með þreföldum fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu út á steypta verönd. 
Eldhús með Brúnás innréttingu, helluborð í bekk, ofn og stálvaskur með einnar handar blöndunartækjum.
Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél í innréttingu, framhlið fylgir með, op fyrir ísskáp er 186 cm á hæð. 
Svefnherbergi, sexfaldur fataskápur. 
Baðherbergi með flísum á gólfi, sturta, vaskinnrétting og speglaskápur, upphengt salerni. Veggir sturtuhorns baðherbergis er flísalagt.
Inn á baðherbergi er pláss fyrir tvær vélar í innréttingu.
Sér geymsla ásamt vagna- og hjólageymslu er á neðri hæð hússins. 

EIGNINNI VERÐUR SKILAÐ FULLBÚINNI SAMKVÆMT SKILALÝSINGU SELJANDA; Flísar verða á anddyri og baðherbergi og parkett á alrými og svefnherbergi. Veggir og loft íbúðarinnar verða máluð í hvítum lit. Reykskynjarar, slökkvitæki og læstur lyfjaskápur fylgja íbúðinni.

Fífutún 8 er sjö íbúða tvílyft hús. Útveggir eru forsteyptir. Gólfplötur eru staðsteyptar. Þak er viðsnúið, halli að niðurföllum er mótaður í steyptri þakplötu, tvöfalt ásoðinn þakpappi, XPS plasteinangrun 240mm í tveimur lögum, fleytidúkur og þakmöl. Útihurðar, gluggar og svalahurðar eru timbur/ál með tvöföldu K-gleri frá NorDan Ísland ehf.
Lóðin er sameiginleg 1155,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings. Lóðin er leigð til 50 ára frá 23.10.2025, skjal nr. 446-E-001018/2025.

Áætlað fasteignamat 2026 m.v. bst. B4, mst. 7, er kr. 41.200.000,-
Gjöld er kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 
- 0.8% af fasteignamati, u.þ.b. kr. 329.000,-
- 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða, u.þ.b. kr. 165.000,-
- 1.6% fyrir lögaðila, u.þ.b. kr. 659.000,-
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali s.s. kaupsamning, veðskuldabréfi, veðleyfi, afsali o.fl. kr. 3.800,- af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá heimasíður lánastofnanna. 
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.-, með vsk.
5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% þegar þess verður krafist.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 35 (307)
Hringhamar 307.jpg
Hringhamar 35 (307)
221 Hafnarfjörður
99.6 m2
Fjölbýlishús
413
808 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Dverghamrar 24
Dverghamrar 24.jpg
Skoða eignina Dverghamrar 24
Dverghamrar 24
112 Reykjavík
183.2 m2
Fjölbýlishús
513
742 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 41 (Vesturvin 1) íb 206
08-220621_v64_v3-kitchen_02ver_view01.jpg
Mýrargata 41 (Vesturvin 1) íb 206
101 Reykjavík
136.3 m2
Fjölbýlishús
423
921 þ.kr./m2
125.500.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 1
Opið hús:25. júní kl 17:00-17:45
Skoða eignina Asparlaut 1
Asparlaut 1
230 Reykjanesbær
78.5 m2
Fjölbýlishús
21
750 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin