Fasteignaleitin
Skráð 16. júlí 2025
Deila eign
Deila

Austurmörk 30A - 203

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
54.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
45.500.000 kr.
Fermetraverð
831.810 kr./m2
Fasteignamat
17.800.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2025
Lyfta
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2532244
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
1,04
Upphitun
Hitaveita ofnar + gólfhiti á baðherbergi
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
BYR fasteignasala kynnir AUSTURMÖRK 30A íbúð 203, 810 Hveragerði. Ný tveggja herbergja íbúð á annarri hæð í nýju fjölbýlishúsi með lyftu í Tívolíbyggð Hveragerði. 
Húsið er vel staðsett í miðsvæðis í Hveragerði, stutt í alla almenna þjónustu, útivist og ýmiskonar afþreyingu, sjá nánar hér.

TIL AFHENDINGAR JÚLÍ 2025.  VELKOMIN Í HVERAGERÐI!
BYR FASTEIGNASALA | 483-5800 | byr@byrfasteignasala.is |


Austurmörk 30A íbúð 203 skiptist í íbúð 51.4 m² og geymslu 3.3 m² samtals 54.7 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS. 
Skipulag íbúðar: Anddyri/hol, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign: Sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla. 

Nánari lýsing:
Anddyri/hol með fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er frá alrými út á hellulagðan sérafnotareit sem til suðurs. 
Eldhús, sérsmíðuð innrétting, heimilistæki frá AEG spanhelluborð og gufugleypir, ofn, kæli- og frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu. 
Vaskur og Grohe blöndunartæki eru í eldhúsi, innbyggð lýsing undir efri skápum. 
Svefnherbergi með fataskápum.
Baðherbergi, flisar á gólfi og á veggjum í sturtu, upphengt salerni, vaskinnrétting, speglaskápur, Grohe blöndunartæki. Gólfhiti er á baðherbergi. 
Þvottaaðstaða er á baðherbergi.
Í sameign er sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  

Íbúðinni verður skilað samkvæmt skilalýsingu seljanda. Flísar verða á gólfum baðherbergja, öðrum gólfum er skilað án gólfefna. 
Innréttingar eru allar sérsmíðaðar frá Selós. Íbúð er upphituð með ofnum á lokuðu kerfi með varmaskipti. 
Loftræsikerfi með varmaendurvinnslu er í íbúð. 

Austurmörk 30 er 13 íbúða, þriggja hæða hús. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með ál-trapísuklæðningu frá Málmtækni.
Þakplata er staðsteypt frágengið með þakdúk frá Sika og þakmöl. Gluggar og hurðar eru álklæddir timburgluggar frá Ideal Combi.
Lóð er frágengin með malbikuðum bílastæðum og stígum. Gengið er inn í íbúðir af opnum svalagöngum, lyfta er í húsinu.
Yfirborð við inngang sem og sérafnotareiti er hellulagt. Önnur svæði eru frágengin með grasi. 
Sameiginleg bílastæði eru á lóð. Tengipunktar fyrir rafbílahleðslur eru í grennd við bílastæði. Sameiginleg sorpskýli eru á lóð. 

Aðalverktaki JÁVERK ehf. T.ark arkitektar eru aðalhönnuðir hússins. Burðarþolshönnun og lagnahönnun Verkfræðistofa Reykjavíkur. Raflagnahönnun Voltorka ehf.
Tívólibyggð samanstendur af sjö fjöleignarhúsum með samtals 80 íbúðum. Smellið hér fyrir heimasiðu Tívolíbyggðar.

Íbúðin er byggð samkvæmt kröfum Umhverfisstofnunar til að hljóta Svansvottun að framkvæmdum loknum.
Í svansvottuðum byggingum hefur allt byggingarefni sem sett er í bygginguna verið samþykkt og uppfyllir kröfur svansins.
Svansvottaðar íbúðir eru almennt taldar betri fyrir umhverfið og heilsuna, enda eru strangar kröfur um innihald skaðlegra efna í öllu byggingarefni.
Í íbúðinni hefur verið tryggð góð innivist með góðri loftræstingu og hljóðvist. Hönnun byggingarinnar miðar að því að orkunotkun sé hagkvæm. 
Smellið hér fyrir upplýsingar um Svansvottun.

Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða eru gildandi ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna.
Allt auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar.
Laus búnaður og annað sem kann að vera sýnt á teikningum eða þrívíddar myndum en er ekki talið upp í skilalýsingu fylgir þannig ekki íbúðum.
Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétt til að gera tækni-, efnis- og útlitsbreytingar.
 
Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.
Um er að ræða eign í byggingu og brunabótamat liggur ekki fyrir, kemur það í hlut kaupanda að greiða skipulagsgjald 0,3% þegar þess verður krafist.
Húsfélag hefur ekki verið stofnað og kemur það í hlut nýrra eigenda að stofna húsfélag vegna sameignar.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina AUSTURMÖRK 30A - 303
Austurmörk 30A - 303
810 Hveragerði
54.7 m2
Fjölbýlishús
211
839 þ.kr./m2
45.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16 (403)
Hnjúkamói 16 (403)
815 Þorlákshöfn
50.9 m2
Fjölbýlishús
211
921 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina HNJÚKAMÓI 16 ÍBÚÐ 403
Hnjúkamói 16 Íbúð 403
815 Þorlákshöfn
50.9 m2
Fjölbýlishús
211
921 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16 (105)
Hnjúkamói 16 (105)
815 Þorlákshöfn
50.7 m2
Fjölbýlishús
211
925 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin