Fasteignaleitin
Skráð 7. ágúst 2025
Deila eign
Deila

Engihjalli 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
97.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
614.990 kr./m2
Fasteignamat
56.000.000 kr.
Brunabótamat
49.400.000 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1979
Þvottahús
Lyfta
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2060067
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
9
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Rætt hefur verið að fara í viðhald á þaki en ekki búið að leita tilboða
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðrún Lilja lögg. fasteignasali og RE/MAX kynna í einkasölu:  Einstaklega björt og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á 5. hæð (merkt 01-0501-D) í góðu lyftuhúsi við Engihjalla 17, Kópavogi.  Eignin skiptist í forstofu, hol, þrjú góð svefnherbergi, eldhús, borðstofu og stofu ásamt baðherbergi.  Tvennar svalir eru í íbúð með möguleika á svalarlokun. Þvottahús er staðsett í sameign á hæð og sérgeymsla í kjallara. Gott húsfélag og virkt samstarf.   Birt stærð íbúðar er 99,4 fm. fyrir utan geymslu í kjallara. 

Einstaklega fallegt útsýni er úr íbúð til fjalla og yfir höfuðborgarsvæðið.  Stutt í alla helstu verslanir og þjónustu, einnig eru vinsælar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni.  Eign sem vert er að skoða.

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is


Nánari lýsing:
Forstofa er parketlögð.  Svefnherbergin eru þrjú, mjög björt og með parketi á gólfum. Þá tvö rúmgóð svefnherbergi og eitt minna. Hjónaherbergið er einstaklega bjart með stórum fataskápum og útgengt er út á norður svalir með fallegu útsýni
Eldhús er með vandaðri innréttingu frá Axis og góðum búrskáp. Helluborð, vifta og nýlegur bakaraofn er í vinnuhæð. Rými er við gluggann fyrir eldhúsborð eða góða vinnuaðstöðu. Parket er á gólfum.
Borðstofa og stofa er í björtu og opnu rými með einstaklega fallegu útsýni til fjalla og yfir höfuðborgarsvæðið. Parket er á gólfum.  Útgengt er úr stofu á stórar austur svalir.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með sturtubaðkari, snyrtilegri vaskinnréttingu með spegli og stórum opnanlegum glugga.
Sérgeymsla er staðsett í sameign í kjallara, ath geymsla ekki skráð í birta fm. tölu eignarinnar.   Hjóla- og vagnageymsla í sameign á jarðhæð með góðu aðgengi.
Þvottahús er á hæðinni, sameiginlegt með tveim öðrum íbúðum.  Á 8 hæð er sameiginleg fundaraðstaða og rými fyrir frystikistur.
Garður er sameiginlegur, stór og gróinn.
Bílastæði eru sameiginleg.

Myndavéladyrasími og nýlegt vandað parket frá Álfaborg á íbúðinni. Skipt hefur verið um glugga og gler að hluta. Búið er að skipta út flestum rafmagnstenglum og rofum íbúðar nema á baðherbergi. Skipt var um alla ofna í íbúð fyrir 3-4 árum. Möguleiki er á svalarlokun og fordæmi fyrir því í húsinu að stækka anddyri íbúðar. Gott og vel rekið húsfélag er í húsinu og töluvert viðhald farið fram síðustu ár.  Búið er að taka hluta hússins að utan, múrviðgert og málað, austursvalir teknar í gegn, múraðar og málaðar. Nýleg niðurföll svölum norðanmegin, búið að endurnýja teppi á stigapall og ytri lyftudyr málaðar.  Nýlegir ofnar í sameign á 1.-9. hæð. Nýlegur dyrasími með myndavél og sameign öll hin snyrtilegasta.

Gott og vel rekið húsfélag er í húsinu og töluvert viðhald farið fram síðustu ár.  Staða framkvæmdasjóðs dags. 24.07.25 er kr. 27.800.000,- og staða hússjóðs kr.3.800.000,-

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/06/200918.620.000 kr.19.000.000 kr.97.4 m2195.071 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin