Fasteignaleitin
Skráð 25. júlí 2025
Deila eign
Deila

Safamýri 48

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
100.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.900.000 kr.
Fermetraverð
726.096 kr./m2
Fasteignamat
65.650.000 kr.
Brunabótamat
48.250.000 kr.
Mynd af Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Löggiltur fasteignasali / Viðskiptafræðingur
Byggt 1965
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2014799
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjaðar og tafla
Frárennslislagnir
Fóðraðar
Gluggar / Gler
Endurnýjað
Þak
endurnýjað ca 2007/2010
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestursvalir (nærð suðri)
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir

 
**EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN**
FÆRRI FENGU ÞESSA EIGN EN VILDU, OG VIÐ ERUM ÞVÍ MEÐ KAUPENDALISTA AÐ SAMBÆRILEGUM EIGNUM Í HVERFINU. ENDILEGA HAFÐU SAMBAND EF ÞÚ ERT Í SÖLUHUGLEIÐINGUM Á gudbjorg@remax.is og gylfi@remax.is 


Guðbjörg Helga og Gylfi Jens löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX kynna: Safamýri 48, 108 Reykjavík

Björt, vel skipulögð og mikið endurnýjuð 4ra herbergja 100,4 fm íbúð á 4.og efstu hæðinni í góðu fjölbýlishúsi á vinsælum stað miðsvæðis í Reykjavík. Húsið er með mjög virkt húsfélag með góða framkvæmdasögu þar sem mikið hefur verið uppgert og endurnýjað. Kringlan og þjónustuaðilar á háaleitisbraut í göngufjarlægð og stutt í almenningsamgöngur og stofnæðar. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni til vesturs og allt til Akraness. Geymsla í kjallara er utan fm.tölu. Fasteignamat 2026 verður 72.550.000 kr. Rafhleðslustöðvar hafa verið settar upp á lóðinni (Ísorka) við hlið bílskúranna. 

    > SÆKTU SÖLUYFIRLIT SJÁLFKRAFA HÉR
   
    > ÞRÍVÍÐ SÝN - SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD 
    
Þú getur notað táknin niðri til vinstri til að mæla lengdir á flötum, ýtt á stólinn til að þurrka út öll húsgögn með aðstoð gervigreindar sem leyfir þér að sjá hana            tóma (ath, að litamunur getur verið á veggjum og gólfi, þar sem þetta er gervigreind sem sér ekki raunverulega undir svæðin fyrir húsgögnum við myndatöku)

     NÚVERANDI SKIPULAG: 
Sérskápur á stigapalli, forstofa með fatahengi, Stofa/Borðstofa, eldhús, baðherbergi með þvottavélaaðstöðu, gangur, 3 herbergi, geymsla innan íbúðar, geymsla í kjallara utan uppgefinna fm.   

     NÁNARI LÝSING: 
Stigapallur: Á stigapalli er djúpur innfelldur skápur og á íbúðin þann hluta hans sem er nær íbúðinni. 
Forstofa: Komið er inn í góða forstofu með útskoti þar sem er fataslá og gott pláss fyrir skó og yfirhafnir. 
Stofa/borðstofa: Mjög björt og rúmgóð með stórum útsýnisglugga þar sem horft er til vesturs, m.a. Perlan, Akranes, sjávarsýn og fleiri kennileiti. Útgengi á góðar vestursvalir með grálökkuðu gólfi. Vegginnréttingar í stofunni geta fylgt. 
Eldhús: Svört U-laga eldhúsinnrétting með skyggðu gleri að hluta í efri skápum. Sérsmíður borðplata. Mikið skápapláss. Vaskur er með vönduðu blöndunartæki með sturtuhaus. Kæliskápur og frystiskápur fylgja með, tengi fyrir uppþvottavél. Bakarofan í vinnuhæð, helluborð og vifta. 
Baðherbergi m/þvottavélatengi: Walk-in sturta með gleri. Upphengt salerni og var útbúinn innbyggður skápur ofan þess. Góð innrétting með skápum og skúffum, handlaug ofan á með borðplötu serm er ein eining, speglaskápar með lýsingu á vegg. Flísar hólf í góf,  2 x handklæðaofnar. Þvottavélatengi og skápur þar einnig, svo baðherbergið er einstaklega vel skipulagt með miklu geymsluplássi. Gólfhiti settur á baðherbergi, stillirofi inni í skáp ofan salernis.
Þvottaaðstaða: Tengi fyrir þvottavél er inni á baðherbergi íbúðar (Bakvið hurðina). Skápur ofan þess. 
Herbergi I: Mjög stórt og rúmgott. Skápar eftir einni hlið með rennihurðum. Hurð út á svalir. Útsýni yfir höfuðborgina, sjávarsýn og allt til Akraness.
Herbergi II: Það er rúmgott, með skáp í enda með rennihurðum. Hægt er að hafa rennihurðir alveg hvítar (snúa viðarlitu þiljunum við ef fólk vill) 
Herbergi III: Minnsta af þremur, en það nær þó 2 metrum vegg í vegg undir glugga, svo það nýtist vel sem skrifstofa eða barnaherbergi með rúmi í fullri lengd. 
Geymsla: Lítil  nett geymsla en þó drjúg á ganginum við herbergin. Hillur.
Sérgeymsla í kjallara: Utan fermetratölu. Er í miðjum geymslugangi. 
Sameign: Þvottahús með sameiginlegri þvottavél og þurrkara, hjólageymsla. Ruslalúga í stigagangi er enn í notkun fyrir almennt rusl, en farið með hitt niður í tunnugeymslu. Mjög snyrtilegur uppgerður stigagangur. 

     FRAMKVÆMDIR Á EIGNATÍMA SELJENDA Á ÍBÚÐINNI:
2025: Rennihurð á fataskáp í herbergi II
2024: Nýir samtengdir reykskynjarar settir upp í stigagangi
2023: veggskápar í stofu settir upp
2022: Gluggar stofumegin (vesturhlið) endurnýjaðir á öllu húsinu, múrviðgerðir og blettamálun þar sem þurfti
ca 2000: Stigahús málað og teppi endurnýjað, sett upp ljós og myndavéladyrasími endurnýjaður (snjallvænn),
2018: Nýir fataskápar settir í herbergi I og II
2021: Nýjar innihurðir og parket (Birgisson)
2020: Frárennslislagnir fóðraðar frá kjallara að stofni og brunnar endurnýjaðir
2019: nýir gluggar bílastæðismegin (austurhlið) á öllu húsinu
2019: Nýjar svalahurðir, bæði úr stofu og herbergi
2019: Eldhús endurnýjað. Ný innrétting frá Ikea, sérpöntuð borðplata frá Fanntófell, kælir, frystir, eldhústæki. blöndunartæki með sturtuhaus, vínilparket.
2018: baðherbergi endurnýjað. Sett Walk-in sturta, nýjar flísar, ný innrétting (Bauhaus) og speglaskápur stór, upphengt salerni, handklæðaofnar x2, ný blöndunartæki.
2018: Allar raflagnir og rafmagnstafla íbúðar endurnýjuð 

Skv. uppl. í fyrra söluyfirliti er núverandi eigendur keyptu og þau voru upplýst um við kaup:
2007-2010: hús múrviðgert og málað og þakjárn endurnýjað

     ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s 897 7712, gudbjorg@remax.is 
Gylfi Jens Gylfason, löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 gylfi@remax.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/04/201837.100.000 kr.39.000.000 kr.100.4 m2388.446 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignanúmer
F2014799

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grensásvegur 1 A - 207
Grensásvegur 1 A - 207
108 Reykjavík
71.6 m2
Fjölbýlishús
21
1059 þ.kr./m2
75.800.000 kr.
Skoða eignina Gautland 19
3D Sýn
Skoða eignina Gautland 19
Gautland 19
108 Reykjavík
83.2 m2
Fjölbýlishús
413
900 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Gautland 21
Skoða eignina Gautland 21
Gautland 21
108 Reykjavík
85.2 m2
Fjölbýlishús
412
879 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Háaleitisbraut 39
Háaleitisbraut 39
108 Reykjavík
100.2 m2
Fjölbýlishús
412
698 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin