Fasteignaleitin
Skráð 22. apríl 2026

Aðalstræti 16

Tví/Þrí/FjórbýliNorðurland/Akureyri-600
173.4 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
80.900.000 kr.
Fermetraverð
466.551 kr./m2
Fasteignamat
81.100.000 kr.
Brunabótamat
78.550.000 kr.
SS
Sigurbjörg Sigfúsdóttir
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2213492
Landnúmer
146979
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Raflagnir
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Frárennslislagnir
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Lóð
51,04
Upphitun
Hitaveita - Ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Kasa fasteignir 461-2010.

Aðalstræti 16 - Einstaklega falleg og sjarmerandi íbúð, efri hæð og ris, í einu af fallegustu húsum bæjarins. Útsýni til fjalla, sólríkar og skjólgóðar suðursvalir. Einstakt hús í hjarta Innbæjarins, sem er elsti hluti bæjarins með mikla sögu. Húsið er í göngufæri við leikhúsið og miðbæinn og steinsnar er á flugvöllinn, í Skógarböðin og í Sundlaug Akureyrar. 

Húsinu er mjög vel við haldið. Á árunum 2021 til 2024 stóð húsfélagið fyrir umfangsmikilli viðhaldsvinnu að utan og húsið allt málað, gluggar, veggir og þak, með styrk frá húsafriðunarnefnd.
Húsið var endurnýjuð frá grunni að utan sem innan á árunum 1992-4 og var mjög haganlega að allri vinnu staðið til að viðhalda upprunalegu útliti hússins. Hólmsteinn Snædal sá um verkið, en hann á heiðurinn af endurbyggingu á mörgum þeim gömlu húsum sem margir þekkja, t.d. í göngugötunni á Akureyri.
Húsið er byggt árið 1900 og er einingahús þess tíma, viðirnir í burðarvirkið komu tilsniðnir og númeraðir frá Noregi, en er reist af Sigtryggi Jónssyni snikkara og er nefnt eftir honum, Sigtryggshús.
Samtals er eignin 173,4 fm.
Lóðin er stór, skráð 2.217fm og er eignarlóð í sameign með íbúð á neðri hæð. Stærstur hluti hennar er brekkan austan við húsið, en auk þess er garðflöt sunnan við húsið.
Með eigninni  fylgir einnig 50% hlutur í Aðalstræti 18 fnr. 233-7892, einbýlishúsalóð sem hefur verið notuð sem bílastæði fyrir eigendur Aðalstrætis 16. Pláss er fyrir fjóra bíla.

Nánari lýsing:
Gengið er inn í íbúðina af verönd á norð-austur horni hússins. Útihurð í gömlum stíl.  Þar er komið inn í flísalagða forstofu.  Fallegur stigi er upp á hæðina með handbragði Hólmsteins á veggjum.  Lítið þvottahús er á stigapalli á hæðinni.  Aðalhæð íbúðarinnar skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu og eldhús, borðstofu og hol í einu opnu rými. Upprunalegar gólffjalir eru á hæðinni að mestu og hafa þær verið pússaðar upp.  Upprunalegar loftfjalir eru í loftum og á veggjum eru brjóstlistar og veggfóður á hluta.  Á eldhúsi eru nýrri  gólffjalir og á baðherbergi er dúkur.  Á baðherbergi er baðkar og eru öll tæki á baði í gömlum stíl. Nýr vaskur og vaskskápur eru í baðherbergi.  Í eldhúsi er sérsmíðuð innrétting og úr borðstofu er farið út á svalir til suðvesturs. Nýr bakarofn og nýleg uppþvottavél.
Úr holi er stigi upp í bjart og rúmgott ris sem er skráð 48,7 fm, en nýtanlegir fermetrar eru töluvert fleiri undir súð. Gólffjalir eru þar á gólfum og bitarnir í loftinu sjást sem setur skemmtilegan svip á risið.  Allur frágangur er til fyrirmyndar.  Risið skiptist annars í tvö svefnherbergi, litla snyrtingu, hol sem notað hefur verið sem sjónvarpsherbergi og fallega lesstofu, sem einnig hefur verið notuð sem gestaherbergi.

Annað:
- Við endurbyggingu hússins á árunum 1992-4 var skipt um alla klæðningu að utan, alla glugga, járn á þaki, útihurðir, allar lagnir og ofna í húsinu.
- Útihurðin er í gömlum stíl en innihurðir og svalahurð eru upprunalegar.
- Sameiginleg útigeymsla er undir svölunum á austurhlið hússins.
- Húsið er friðlýst að utan og hægt að sækja styrki til viðhalds þess skv. lögum um húsafriðun.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/05/201733.000.000 kr.38.000.000 kr.173.4 m2219.146 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kristnibraut 57
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:30. apríl kl 16:30-17:30
Skoða eignina Kristnibraut 57
Kristnibraut 57
113 Reykjavík
112.8 m2
Fjölbýlishús
312
682 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Hásteinsvegur 18
Bílskúr
Hásteinsvegur 18
825 Stokkseyri
192 m2
Einbýlishús
514
468 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Garðsendi 3
Opið hús:29. apríl kl 16:30-17:00
móa_vefur (5).png
Skoða eignina Garðsendi 3
Garðsendi 3
108 Reykjavík
101.8 m2
Fjölbýlishús
312
854 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 305
Bílastæði
Opið hús:25. apríl kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 305
105 Reykjavík
89.8 m2
Fjölbýlishús
322
1057 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin