Domusnova fasteignasala og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynnir: Fallega 3ja herbergja íbúð á 2 hæð í Grýtubakka 22, á rólegum stað í Bakkahverfi í Breiðholti. Íbúðin telur 71 fm samkvæmt FMR og þar af 8,9 fm geymsla.
*** FRÁBÆR FYRSTU KAUP ***
Skipulag íbúðar: forstofa, tvö svefnherbergi, eldhús, stofa, baðherbergi og svalir. Sérgeymsla er í sameign sem og hjóla/vagnageymsla.
Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi og fatahengi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og mikið skápapláss.
Barnaherbergi: Er Parketlagt með góðum fataskáp.
Baðherbergi: Bað með sturtuaðstöðu, uppáhengt klósett, tengi fyrir þvottavél, hiti í gólfi og flísar.
Eldhús: Er með fallegri innréttingu, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð, helluborð í borðplötu og parket á gólfi.
Stofa: Með parketi á gólfi, út gengt úr stofu á svalir.
Geymsla: sér geymsla er í sameign.8,9fm.
Hjóla/vagnageymsla: Er í sameign.
Garður. Sameiginlegur og snyrtilegur garður. Barnvænt umhverfi.
Bílastæði. Næg bílastæði eru að öllu jöfnu fyrir utan fjölbýlishúisið.
Endurnýjað innan íbúðar af fyrri eiganda.
2021: Skipt var um ofna og ofnalagnir að hluta til.
2021: Gólf, parket, eldhús og hurðar
2019/2020: Inn á baðherbergi var settur hiti í gólfið, lagðar niður flísar og skipt um klósett.
2019/2020: Skipt um glugga og svalahurð.
Nýlegar framkvæmdir á eign að utan.
Gluggar endurnýjaðir 2019
Þak yfirfarið og sett nýtt þakjárn 2020
Málað að utan árið 2020.
Hleðslustaurar fyrir 4 rafmagnsbíla fyrir utan blokkina 2020
Sameign máluð 2021
Um er að ræða mikið endurnýjaða fjölskyldueign á vinsælum stað í bökkunum í neðra Breiðholti. Öll þjónusta, skólar, leikskólar og afþreying í göngufæri. Stutt í náttúruperlur við Elliðadal, Árbæjarsafn og svokallaðan Indíanaskóg þar sem finna má fallegar gönguleiðir.
Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali ragga@domusnova.is / sími 861-4644
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.