Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt 97,4 m2 endaraðhús á einni hæð í byggingu við Birkihlíð 17 á Flúðum. Um er að ræða vel skipulagt hús á frábærum stað miðsvæðis á Flúðum, en mikil uppbygging er framundan á þessu svæði. Góð lofthæð er í húsinu sem gerir það bjart og skemmtilegt. Hljóðdúkur er í lofti í stofu sem gefur góða hjóðvist. Fallegar innréttingar frá HTH.
Bílaplan verður steypt með snjóbræðslu.
Eignin er skráð 97,4 m2 og skiptist í forstofu, baðherbergi, þvottaherbergi, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu og geymslu með glugga, sem er hægt að nýta sem herbergi.
Eignin afhendist samkvæmt skilalýsingu seljanda fullbúin á byggingarstigi B4 í janúar 2027.
Smelltu hér til að fá söluyfirlitið sentVerð kr. 81.900.000,- Skilalýsing Birkihlíð 17-21Eignin skilast fullbúinn samkvæmt byggingarstig B4
Utanhúss: Þriggja íbúða raðhús á einni hæð. Byggt úr forsteyptum einingum frá Ístak. Útveggir eru klæddir forsteyptri veðurkápu að utanverðu með sjónsteypu áferð og sílanböðuð og klædd að hluta til með bandsagaðri klæðningu. Þak er hefbundið sperruþak með þakpappa og klætt með lituðu báuráli. Steypt þök eru að hluta til og eru þau viðsnúin.
Á lóðinni er gert ráð fyrir tveimur bílastæðum við hverja íbúð og sorpskýli fyrir 4 sorpílát. Lóð er skilað í hæð og með torfi og bílastæði er steypt með snjóbræðslu. Þakrennur, niðurföll og þakkantur frágengin. Ál/tré gluggar með tvöföldu K-gleri og ál/tré inngangshurðar/svalahurðar.
Innanhúss: Innréttingar frá HTH Hreinlætistæki frá Tengi eða sambærilegt, innihurðir og gólfefni frá Birgisson og Húsasmiðjunni. Gipsloft í herbergjum, gangi og baði/þvottahúsum. Sparslað, grunnað og málað. Hljóðdúkur í loftum í stofum. Gólf eru steypt og með fljótandi harðparketi og flísum að hluta til. Innveggir: Uppsettir samkvæmt teikningu, léttir innveggir klæddir með spónaplötum innra lag og gifsplötum ytra lag, sparstlaðir,grunnaðir og málaðir. Rafmagn: Inntak og rafmagnstafla uppsett og tengd. Rafmagn dregið í, tenglar,rofar og innfelld ljós frágenginn. Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Pípulagnir: Inntak hita og neysluvatns klárt. Gólfhitakerfi tengt og frágengið (ekki gólfhitastýring). Neysluvatn lagt í gólf og veggi samkvæmt teikningum. Hita-, rafmagns og vatnslagnir eru lagðir í gólfplötu og steypta innveggi samkvæmt teikningum. Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi. Stofninntök neysluvatnslagna tengd og full frágengin. Pípur fyrir raf- og boðlagnir eru miðaðar við samþykktar skipulagsteikningar. Heimtaugar rafmagns og boðtauga skulu tengdar og frágengnar. Minniháttar breytingar hafa verið gerðar frá gildandi teikningum og á eftrir að skila inn reyndarteikningum fyrir þær breytingar.
Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd. Seljandi greiðir heimtaugagjöld fyrir rafmagn og hita, en kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat.