Hér er á ferðinni vel skipulögð, björt og rúmgóð eign á frábærum stað í Vatnsendahverfi Kópavogs.
Eignin er með aukinni lofthæð, stórum svölum með útsýni yfir Elliðavatn og 55fm verönd með útgengi úr eldhúsi.
Eigninni fylgir 28,0 fm bílskúr með geymslu.
Góð fjarlægð er í nærliggjandi hús og því óhindrað útsýni og náttúru til beggja átta.
Staðsetningin er mjög góð þar sem stutt er í skóla, verslun, íþróttasvæði og samgöngur.
Nánari upplýsingar og bóka skoðun:
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er kr. 114.700.000-.
Nánari lýsing eignar:
Anddyrið er rúmgótt með flísum á gólfi, innfelldum fataskáp, opnu fatahengi, fallegri stálsmíðaðri rennihurð og sérsmíðuðum bekk.
Gestasnyrtingin er inn af anddyrinu með flísum á gólfi, upphengdu salerni, sturtu og glugga með opnanlegu fagi.
Stofan og borðstofan mynda opið og bjart alrými með parket á gólfi og einstöku útsýni. Útgengt á svalirnar sem einnig skarta fallegu útsýni til norðausturs.
Eldhúsið er mjög rúmgott með góðum eldhúskrók, niðurteknu lofti og útgengi á veröndina að aftan.
Falleg sérsmíðuð innrétting með miklu skápaplássi og vinnurými, tveir innbyggðir Siemens bakaraofnar í góðri vinnuhæð, Bora span helluborð með innbyggðri viftu, innbyggður kæliskápur og uppþvottavél.
Parket á gólfi og Kvarts steinn frá Granítsmiðjunni á borðum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu. Kvarts steinn frá Granítsmiðjunni á borðum, innfelld lýsing, speglaskápur, innbyggður handklæðaofn, upphengt salerni og rúmgóð walk-in sturta.
Svefnherbergi I er rúmgott með parket á gólfi, stórum innfelldum fataskápum og stálsmíðaðri rennihurð. Gluggi til norðausturs.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi og opnum fataskáp. Gluggi til suðvesturs.
Svefnherbergi III er með parket á gólfi og fataskáp. Gluggi til suðvesturs.
Svefnherbergi IV er með parket á gólfi og glugga til suðvesturs.
Þvottahúsið er með flísum á gólfi, hillum og rými fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúrinn er 28,0 fm. og er snyrtilegur með epoxy málningu á gólfi, hurðaopnara og vask.
Geymsla 9,3 fm. er í enda bílskúrsins.
Svalirnar 21,3 fm. skv. FMR og eru með skyggni yfir og snúa til norðausturs með fallegu útsýni.
Verönd/pallur um 55 fm. (14,0 fm. skv. teikningu) og snýr til suðvesturs með ósnortinni náttúru fyrir framan.
Birt stærð eignar er alls 185,2 og skiptist í íbúð 147,9 fm, bílskúr 28,0 fm. og geymsla 9,3 fm. skv. Þjóðskrá Íslands.
ATH að meðfylgjandi teikningar endurspegla ekki að fullu skipulag eignar í dag þar sem breyting var gerð við bað og herbergi. Eignin endurskipulögð 2020. Bætt við fjórða svefnherberginu á svefnherbergisganginum.
Nýleg glerlokun í stigauppgangi sem minnkar veður og snjó.
Ruslaskýli er smekklega frágengið þar sem byggt er yfir það og klætt að utan. Eign sem er í sérflokki á þessum fallega stað með útsýni yfir Bláfjöll, Elliðavatn og nágrenni.
Ekki verður byggt á reitnum fyrir aftan húsið.
Stutt er í upplýstar gönguleiðir og alla helstu þjónustu.
Sjón er sögu ríkari!
Andarhvarf 7B samanstendur af 4 íbúðum og 4 bílskúrum. Tvær íbúðir á hæð.
Tilheyrir heildarhúsinu Andarhvarf 7A - 7D þá 4 matshlutum á lóð. Bílastæði fyrir framan hvern bílskúr.
Hlutfallstala í húsi 24,84% og lóð og heildarhúsi 5,97%.
Andarhvarf 7, 203 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 229-2239 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Andarhvarf 7 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 229-2239, birt stærð 185.2 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.