Miklaborg kynnir: Afar fallegt og sjarmerandi einbýlishús í gamla stílnum á rólegum stað í miðbæ Reykjavíkur. Húsið er á þremur hæðum og með nýtanlegu risi sem er óskráð. Sér bílastæði eru á lóðinni með aðkomu frá Bakkastíg. Húsið var upphaflega byggt árið 1894 og stóð til ársins 1991 við Lindargötu, það var síðan flutt á Bakkastíginn og gert upp að nánast öllu leiti það ár.
Miðbæjarperla á besta stað!
Nánari lýsing: Aðkoma að húsinu er frá Bakkastíg.
MIðhæð: Forstofa með fataskáp. Komið inn í stóra stofu með gluggum til suðurs og norðurs. Svalir í suður frá stofu með stiga niður í garð. Gólffjalir eru á stofurými og forstofu. Stigahús tengir hæðir hússins.
Jarðhæð: Komið niður í stórt eldhús/borðstofu. Eldhúsinnrétting er ljós með með viðarborðplötum. Rúmgott svæði er fyrir borðstofuborð í miðju rýmisins. Útgengi er frá eldhúsi á útisvæði við húsið. Ágætt svefnherbergi. Baðherbergi með sturtuklefa, upphengdu salerni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla/þurrkherbergi er við hlið baðherbergis. Gólfefni eru flísar á eldhúsirými og baðherbergi, parket á herbergi og málað steingólf á geymslu/þurrkherbergi.
Efri hæð: Komið inn í rúmgott hol. Tvö góð svefnherbergi og fataherbergi með aðgengi frá holi. Fallegt baðherbergi með klæðningu á veggjum. Stórt baðkar, vaskur, salerni og blöndunartæki í gamla stílnum. Gólfefni á hæðinni eru gólffjalir.
Ris: Brattur stigi úr holi efri hæðar. Í risinu sem nær yfir húsið er geymsla og íverurými sem nýtist sem leikherbergi/svefnherbergi en þar eru gluggar bæði í þaki og á gafli.
Geymsla er undir stiga við inngang í húsið. Aðkoma að húsinu er með kantsteini þar með talið bílastæði. Útisvæði er inn af bílastæði þar sem gengið er úr eldhúsi/borðstofu. Garðurinn er afgirtur með grasflöt og trjám.
Hér má sjá sögu hússins . Upplýsingablað seljenda um ástand eignarinnar má nálgast hjá fasteignasölunni.
Einstakt einbýli sem sameinar klassískan stíl og notalega stemningu.
Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 02/04/2008 | 39.710.000 kr. | 66.200.000 kr. | 177.3 m2 | 373.378 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 126,2 | 155 | ||
109 | 309 | 238 | ||
101 | 44,1 | 41,9 | ||
210 | 144,1 | 154,9 | ||
400 | 135,1 | 49,5 | ||
105 | 114,3 | 169,9 |