Fasteignaleitin
Skráð 20. feb. 2026

Brúnagerði 1

EinbýlishúsNorðurland/Húsavík-640
301.2 m2
9 Herb.
8 Svefnh.
7 Baðherb.
Verð
99.000.000 kr.
Fermetraverð
328.685 kr./m2
Fasteignamat
87.900.000 kr.
Brunabótamat
137.600.000 kr.
Mynd af Hermann Aðalgeirsson
Hermann Aðalgeirsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2152503
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Talið í lagi
Raflagnir
Talið í lagi
Frárennslislagnir
Talið í lagi
Gluggar / Gler
Talið í lagi
Þak
Talið í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Lögeign kynnir eignina Brúnagerði 1.

Eignin Brúnagerði 1 er samtals 301,2 m2 á tveimur hæðum en lokað er á milli hæða. Búið er að endurnýja eignina að miklu leyti á undanförnum árum. Árið 2007 var farið í miklar framkvæmdir á húsi að utan og á verönd hússins. Síðar var bætt við herbergjum og eignin í dag er með fimm svefnherbergjum á jarðhæð sem eru öll með sér baðherbergjum ásamt skáp og svo eru þrjú svefnherbergi á efri hæðinni.

Eignin hentar sérstaklega vel til útleigu, bæði í skammtímaleigu og langtímaleigu. Jarðhæðin er með fimm svefnherbergjum sem eru öll með sér baðherbergjum sem gefur hæðinni þann valmöguleika að byrja að leigja hana út án þess að þurfa fara í framkvæmdir. 

Nánari Lýsing: 
Efri hæð: Forstofa, stofa, borðstofa, eldhús, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. 

Gengið er upp timburstiga og komið inn í flísalagða forstofu, eitt svefnherbergi er við forstofuna sem er flísalagt. Inn af forstofunni tekur við hol sem er í opnu rými með stofunni, eldhúsi og borðstofu. Mikið af gluggum og gott útsýni, eldhúsið var endurnýjað árið 2013 og er með hvítri innréttigu sem er bæði með efri og neðri skápum. Útgengt er úr borðstofu út á litlar svalir. Tvö svefnherbergi ásamt baðherbergi eru síðan staðsett á herbergisgang, í endanum á herbergisgang er útgengt út á timburverönd. Bæði svefnherbergin eru rúmgóð og hjónaherbergið er með baðherbergi inn af sem er með sturtubaðkari, vegghengdu Wc og hvítri innréttingu. Baðherbergið á herbergisgangnum er flísalagt og með sturtubaðkari, hvítri innréttingu og tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara. 

Neðri hæð: Forstofa, þvottaaðstaða, fimm svefnherbergi, fimm baðherbergi, stofa og eldhús. 
Komið er inn í flísalagða forstofu sem er einnig með þvottaaðstöðu. Gengið er inn gang og eru tvö herbergi þar. Svo er komið inn í hol og miðsvæði neðri hæðar þar sem er stofa og eldhús. Gráar flísar eru á gólfi þar. Eitt herbergi er inn af stofu og er það parketlagt. Tvö herbergi eru svo innst á hæðinni og eru þau bæði parketlögð. Líkt og á efri hæð er baðherbergi inn af öllum herbergjum og skápur. 

Að utan er húsið steinað að neðan en viðarklætt að ofanverðu. Steiningin var gerð árið 2007. Í bakgarðinum er nýlegt steypt verönd með heitum potti sem hægt er að ganga beint út á um hurð af svefnherbergisgang efri hæðar. Garðurinn var endurnýjaður að miklu leyti árið 2007 og stuðlaberg notað í hleðslum og á sama tíma var steypt um 150 m2 stétt fyrir framan húsið og nýtt stigahandrið smíðað. Gólfhiti í íbúð á efri hæð og flísalögn var gert árið 2013. Eldhús var endurnýjað á efri hæð árið 2013. 
Tæplega 15m2. geymsluskúr er í bakgarði.


Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/04/202259.850.000 kr.61.700.000 kr.301.2 m2204.847 kr.
11/08/201623.000.000 kr.41.000.000 kr.204.2 m2200.783 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sunnusmári 7 (402)
Opið hús:19. apríl kl 16:00-16:30
móa_vefur (27).jpg
Sunnusmári 7 (402)
201 Kópavogur
99.5 m2
Fjölbýlishús
312
853 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Garðsendi 3
Opið hús:19. apríl kl 15:00-15:30
móa_vefur (13).jpg
Skoða eignina Garðsendi 3
Garðsendi 3
108 Reykjavík
101.8 m2
Fjölbýlishús
312
871 þ.kr./m2
88.700.000 kr.
Skoða eignina Blönduhlíð 10
Opið hús:13. apríl kl 12:00-12:30
Skoða eignina Blönduhlíð 10
Blönduhlíð 10
105 Reykjavík
119.2 m2
Fjölbýlishús
413
670 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Þverholt 7
Bílskúr
Skoða eignina Þverholt 7
Þverholt 7
230 Reykjanesbær
219.7 m2
Einbýlishús
615
528 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin