Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:
Nýtt heilsárshús ásamt gestahúsi með sér baðherbergi ásamt nýjum húsgögnum sem fylgja með, staðsett rétt við Húsafell í Borgarfirði.
Húsið er á steyptri plötu með gólfhita, stór saunaklefi er til staðar, gestahús með sér baðherbergi, stór sólpallur, grillhús, heitur og kaldur pottur, stórt bílastæði.
Í húsinu eru tvö rúmgóð svefnherbergi, 30,5 fm svefnloft, forstofa, baðherbergi með sturtu og hurð út á sólpallinn, gott alrými sem geymir eldhús, stofu og borðstofu.
Eignin er á gróinni útsýnislóð með mikilli víðsýni til jökla og fjalla og er staðsett í landi Stóra-Áss í Borgarbyggð, aðeins 8 min akstur í Húsafell.
Aðalhús er með 70 fm grunnfleti ásamt 30,8 fm svefnlofti (að hluta til undir súð) og 30,5 fm gestahúsi, samtals 131,3 fm að grunnfleti.
Húsið er einstaklega vandað í alla staði að innan og utan, allar timburklæðningar að utan eru úr vönduðu og viðhaldsléttu, hitameðhöndluðu efni frá Thermowood.
Hitaveita, eignarlóð/leigulóð (þú velur), heitur pottur, kaldur pottur, sauna, grillhús, gestahús og 350 fm bílastæði.
Í aðalhúsi er alrými (eldhús/borðstofa/stofa), tvö svefnherbergi, baðherbergi og svefnloft/koníaksstofa.
Gólfefni utan votrýma er mjög vandað Wild West Oak harðparket frá Parka.
Flísar á votrýmum eru sérinnfluttar og sérstaklega vandaðar frá Ítalíu.
Húsið er á steyptri plötu með gólfhita sem kynnt er með hitaveitu.
Lýsingar í húsi eru innfelldar og led borðar frá Rafkaup, einstaklega smekkleg útilýsing við bílaplan, hús og umhverfis húsið í trjálínu og skógi.
Öll heimilistæki í eldhúsi eru "top of the line" frá Siemen, span helluborð, bakaraofn með sjálfhreinsibúnaði, innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Innréttingar á baðherbergi eru sérinnfluttar frá Smith með ítölskum vöskum og borðplötum úr ítölskum steinflísum.
200 fm verönd með útieldhúsi ásamt stórum heitum potti og minni köldum frá Trefjum.
Pottarnir eru með hita- og vatnsstýringum frá Pottastýringum sem hægt er að wifi tengja við síma eða önnur snjalltæki.
Falleg lýsing er bæði við og ofaní pottunum.
Útieldhúsið er af flottustu gerð, innfelld lýsing, ítalskar borðplötur úr steinflísum, fallegir skápar smíðaðir úr Thermowood og tripple shadow klæðning í loftinu.
Flott Weber grill verður afhent með eigninni sem passar inn í útieldhúsið.
Gestahús skiptist upp í hjónasvítu með sér baðherbergi í sama stíl og í aðalhúsi.
Næst kemur geymsla/inntök/þvottahús með sér inngangi og svo að endingu glæsileg sauna með þreföldum bekk á hæðina með fallegri lýsingu bæði í baki og ledborða.
Vönduð sérsmíðuð ljós að hluta til (eins og notuð eru við Edition hótelið) meðfram bílaplani og í lóðinni, inni í trjám og runnum, gefa eigninni höfugt útlit á fallegum kvöldum.
Bílastæði er mjög stórt, u.þ.b. 300-400 fm.
Frárennsli frá húsinu endar allt í vandaðri og nýjustu gerð af hreinsistöð frá Iðnver.
Húsið stendur á 4.569 fm leigulóð/eignarlóð (þú velur) úr landi Stóra-Áss og greitt er 250.000 kr á ári sem dekkar lóðarleigu, notkun á heitu og köldu vatni ásamt umsjón vega.
Hægt er að fá lóðina keypta og breyta henni í eignarlóð og kostar 1.400 kr/fm að leysa lóðina til sína til eignar.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.